Forréttir þurfa svo sannarlega ekki að vera tímafrekir og flóknir. Ora hefur staðið jólavaktina með okkur Íslendingum í áratugi og hér er engin undantekning gerð. Humarsúpan frá Ora er alveg lygilega bragðgóð og stendur fyrir sínu ein og sér en svo er hægt að bæta ýmsu sjávarfangi út í til þess að gera hana örlítið matarmeiri. Hér snöggrista ég risarækjur á blússheitri pönnu og bæti út í. Toppa með léttþeyttum rjóma og ber fram með nýbökuðu baguette. Einfalt, bragðgott og sannarlega hátíðlegt!

Innihald:

450g frosnar risarækjur, hráar

2 msk smjör

2 hvítlauksrif, söxuð

Chiliduft á hnífsoddi

Salt og pipar

2 msk fersk steinselja, söxuð

2 dósir Humarsúpa frá Ora

Þeyttur rjómi eftir smekk

Nýbakað súrdeigsbaguette skorið í sneiðar

Aðferð:

  1. Setjið rækjurnar í sigti og þýðið undir kaldri vatnsbunu úr krananum.
  2. Setjið 2 msk af smjöri á pönnu og setjið saxaðan hvítlauk saman við. Léttsteikið hvítlaukinn í örstutta stund og bætið rækjunum saman við. Saltið, piprið og bætið chilidufti saman við.
  3. Saxið ferska steinselju og stráið yfir þegar rækjurnar eru tilbúnar. Rækjurnar eru mjög snöggar að eldast í gegn og varist að ofsteikja þær. Um leið og þær eru orðnar bleikar eru þær tilbúnar. Setjið pönnuna til hliðar.
  4. Hellið innihaldi úr 2 dósum af Humarsúpu í meðal stóran pott. Hitið súpuna rólega upp að suðu en varist að láta hana bullsjóða.
  5. Þeytið rjómann og setjið í skál. Bætið rækjunum af pönnunni út í súpu pottinn, skerið baguette brauðið og berið fram.

Unnið í samstarfi við Ora.

 

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading