Það er fátt jólalegra en ristaðar möndlur og hnetur, ilmurinn sem kemur af þeim þegar þær bakast í ofninum er óviðjafnanlegur! Þessi uppskrift er mjög einföld og lítið mál að útbúa þær. Ég nota hér hnetublöndu frá Rapunzel en það má í raun nota hvaða hnetur sem er.

Þær eru tilvalin viðbót í matarjólapakkann eða ostakörfuna fyrir sælkerana. Nú eða bara sem létt snarl eða með ostum og góðu víni.

Innihald:

400 g blandaðar hnetur frá Rapunzel (hesli-, brasilíu, kasjúhnetur og möndlur)

2 eggjahvítur

1 tsk vanilludropar

125 g púðursykur

2 tsk malaður engifer (kryddið)

¼ tsk chiliduft

¼ tsk múskat

1 tsk kanill

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 180°C blástur.
  2. Þeytið eggjahvítur saman þar til þær eru nánast stífþeyttar og hrærið þá vanillunni varlega saman við.
  3. Blandið púðursykri og kryddum saman í aðra skál. Hellið hnetunum út í eggjahvíturnar og veltið þeim vel upp úr hvítunum.
  4. Hellið því næst hnetublöndunni út í skálina með sykrinum og blandið vel saman.
  5. Hellið hnetunum á bökunarpappírsklædda plötu og dreifið vel úr þeim. Bakið í ofni í ca. 20 mín og látið hneturnar kólna á plötunni.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading