Það er ótrúlega einfalt að gera þessa bita og það tekur heldur enga stund. Hérna sameinast nokkur uppáhalds element og aðdáendur hnetusmjörs og súkkulaði tvennunnar verða alls ekki sviknir af þessum bitum!
Innihald:
300g Oreo kexkökur
115g smjör
300g mjólkursúkkulaði
100g 70% súkkulaði
175g fínt hnetusmjör
3 bollar rice krispies
Aðferð:
- Byrjið á því að setja bökunarpappír í mót sem er ca. 25x25cm
- Setjið Oreo kexið í matvinnsluvél og hakkið í mylsnu.
- Bræðið smjörið og blandið saman við Oreo mylsnuna, þjappið saman í formið. Gott er að nota eitthvað slétt áhald til þess að hjálpa til við að slétta yfirborðið. Setjið inn í kæli á meðan þið græjið afganginn.
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Setjið hnetusmjörið saman við þegar súkkulaðið er alveg að verða bráðið.
- Setjið rice krispies í skál og hellið súkkulaðiblöndunni yfir. Hrærið vel saman. Takið formið úr kælinum og setjið rice krispies blöndunni yfir og sléttið yfirborðið. Setjið aftur í kæli.
- Kælið í að minnsta kosti 60 mín. Skerið í bita þegar blandan er stíf í gegn.


