Það er fátt sem passar betur saman en ostur, döðlur og ristaðar pekanhnetur og þessi hátíðlegi forréttur tikkar í öll boxin. Einfaldur, bragðgóður og fallegur. Já, hann er nefnilega ansi fallegur á veisluborðinu og það skemmir ekki fyrir þegar gesti ber að garði. Það er auðvitað hægt að nota hvaða hringlaga hvítmygluost sem er en ég mæli sérstaklega með því að nota Dala Camembert en hann er mjög bragðgóður en mildur.

Innihald:

1 stk. Dala Camembert

40g ristaðar pekanhnetur

70g döðlur

1 dl fersk steinselja

½ dl. fljótandi hunang

Nokkrar saltstangir

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C. Setjið hneturnar á ofnplötu og ristið í 8-10 mín. Takið plötuna út og kælið.
  2. Skerið ostinn í 6 hluta eins og þið séuð að skera pítsusneiðar. Takið þá hverja sneið og kljúfið.
  3. Saxið döðlurnar, hneturnar og steinseljuna smátt. Setjið hunangið á disk.
  4. Brjótið saltstangirnar í hæfilega lengd og stingið í breiðari endann á ostsneiðunum.
  5. Dýfið sneiðunum öðru megin í hunangið og passið að það nái að þekja alla sneiðina.
  6. Dýfið þeim þar næst í hnetublönduna og leggið á disk.
  7. Berið strax fram.

 

Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

 

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading