Hamborgarar hafa alltaf verið mitt allra mesta uppáhald. Eitt sinn birtist við mig viðtal í tímaritinu Vikunni þar sem fyrirsögnin var „Vandræðalega veik fyrir hamborgurum“. Sönn saga! Þetta er bara svo fjölbreyttur matur og hamborgari og hamborgari er bara ekki það sama! Endalausir möguleikar í samsetningum og þetta þarf ekkert að vera næringarsnauð máltíð, nema síður sé.
Þessi útgáfa er bara með þeim allra bestu þó ég segi sjálf frá. Stórir borgarar, grillaðir á blússandi hita á gasgrilli og á milli set ég m.a. laukhringi og stökkt beikon. Það allra besta er svo Dala hringurinn sem fer ofan á buffið. Ég sker ostinn þvert í sneiðar og grilla með síðustu sekúndurnar. Þvílíkt og annað eins gúmmelaði, þetta er klárlega borgari sumarsins!
Innihald:
4x 170g hamborgarar
4 hamborgarabrauð, ég notaði kartöflubrauðin
Salt og pipar
1 Dala hringur frá MS
12 laukhringir (ég djúpsteikti þá hér en einnig hægt að ofnbaka)
8 beikonsneiðar, eldaðar stökkar
Tómatsneiðar
Súrar gúrkur
Rauðlaukur skorinn í sneiðar
Lambhagasalat
Majónes og Bbq sósa
Franskar, ég notaði vöfflufranskar
Sýrður rjómi með graslauk og lauk sem ídýfa fyrir franskarnar
Aðferð:
- Byrjið á því að taka hamborgarana úr kæli og krydda með salti og pipar.
- Steikið beikonið og djúpsteikið eða ofnbakið laukhringina.
- Hitið grillið mjög vel, setjið borgarana á grillið og passið að loka alltaf grillinu til að hitinn haldist sem mestur.
- Skerið ostinn þversum þannig að hringurinn haldi sér.
- Snúið við borgurunum og steikið áfram, rétt áður en þeir verða klárið setjið þið ostinn á og lokið grillinu. Leyfið ostinum að bráðna vel en samt án þess að hann leki út um allt.
- Hitið brauðin á grillinu rétt áður en borgararnir eru tilbúnir.
- Samsetning: Botnbrauð, bbq sósa, súrar gúrkur, rauðlaukssneiðar, hamborgarabuff, salat, tómasneiðar, beikon, laukhringir, majónes á toppbrauðið og loka, mæli með að stinga prjóni í gegn!
- Borgararnir eru bestir með einhverjum góðum frönskum og ísköldum bjór (nú eða bara einhverjum öðrum ísköldum drykk). Ég dýfði frönskunum í sýrða rjómann með graslauk og lauk og það er alveg geggjað kombó!






Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

