Dásamleg mokka kaka með þeyttri núggatmús

Þessi súkkulaðikaka er alveg ótrúlega einföld og tekur stuttan tíma að gera. Botninn er mjúkur með góðu súkkulaði og kaffibragði og kremið er algjör leikbreytir! Núggatmúsin er algjör dásemd og myndi líka koma vel út ein og sér í litlum skálum.

Ég mæli líka með að prófa að setja deigið í möffinsform og gera bollakökur!

Innihald:

1 bolli hveiti

1 bolli Rapadura hrásykur frá Rapunzel

2 msk kakó

1 tsk lyftiduft

1/2 tsk matarsódi

1/2 tsk salt

1/2 bolli Oatly tyrknesk jógúrt

1 egg

1 tsk vanilludropar

1/3 bolli bragðlaus kókosolía brædd

1/2 bolli rótsterkt uppáhellt kaffi

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 175°C blástur.
  2. Blandið þurrefnum saman í skál og hellið upp á rótsterkt kaffi.
  3. Setjið oatly jógúrtina, olíuna, vanillu og egg saman við og hrærið í. Setjið kaffið út í og hrærið þar til deigið er samfellt.
  4. Smyrjið 20cm kringlótt form og hellið deiginu út í. Bakið í 25 mín eða þar til prjónn sem stungið er í kökuna kemur hreinn út. Kælið botninn alveg á grind.
  5. Útbúið núggatmúsina, smyrjið á botninn og kælið kökuna.

Núggat mús

1 peli Oatly visp

1 plata núggatsúkkulaði frá Rapunzel

1/4 tsk vanillukorn

3 msk hlynsíróp frá Rapunzel

1/4 tsk sjávarsalt

  1. Bræðið súkkulaði, hlynsíóp, vanillu og salt saman yfir vatnsbaði og hrærið saman þar til súkkulaðiblandan er slétt og samfelld.
  2.  Stífþeytið hafrarjómann í skál. Setjið súkkulaðiblönduna saman.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading