Truflað fajitas með tempura risarækjum, mango salsa & chipotle sýrðum rjóma

Það er eitthvað svo sumarlegt og ferskt við taco og fajitas. Það er líka eitthvað svo sérlega skemmtilegt við að bera þetta fram, hvort sem er fyrir fjölskylduna eða í matarboðum. Þá getur hver valið fyrir sig og stjórnað svolítið sínu. Ég er hér með djúpsteiktar risarækjur í tempura sem marineraðar eru í fajitast kryddblöndu. Þó ég segi sjálf frá er þetta algjörlega truflað. Parað með chipotle sýrðum rjóma, fajitas grænmetisblöndu og fersku grænmeti er þetta einhver samsetning sem sprengir alla skala. Þennan rétt verðið þið bara að prófa og það sem fyrst!

Innihald:

Litlar eða miðlungsstórar tortillur

1 poki frosnar risarækjur, um 450g.

1 bréf fajitas krydd

1 msk vatn

Mangó salsa

Steikt grænmeti

Þroskað avocado í bitum

Kokkteiltómatar skornir

Chipotle sýrður rjómi

Ferskt kóríander

Aðferð:

Affrystið rækjurnar og setjið í skál ásamt vatni og kryddi. Marinerið í 30 mín að lágmarki.

Tempura deig:

½ bolli hveiti

½ bolli maizena mjöl

2 tsk lyftiduft

½ tsk sjávarsalt

¼ tsk hvítur pipar

¾ dós sódavatn eða pilsner

Aðferð:

  1.  Blandið saman þurrefnum og hrærð vökvanum saman við. Látið bíða í allavega hálftíma.
  2.  Dýfið rækjunum út í deigið og djúpsteikið. Ég nota djúpsteikingarpott en einnig er hægt að hita olíu í þykkbotna potti upp í 180°C. Það tekur örskamma stund að steikja rækjurnar, fylgist vel með. Setjið beint á eldhúsbréf þegar þær koma úr pottinum.

Mangó salsa

1 þroskað mangó, skorið í litla teninga

¼ rauðlaukur, smátt skorinn

½ grænt chili, smátt skorið

Ferskt kóríander eftir smekk

Aðferð:

Afhýðið mangóið og skerið í litla bita, setjið í skál. Saxið laukinn, chili og kóríander og setjið saman við. Kælið.

Chipotle sýrður rjómi

1 dós 18% sýrður rjómi frá MS

2 tsk chipotle mauk

Salt eftir smekk

Steikt grænmeti:

1 rauð paprika, skorin í sneiðar

½ rauðlaukur, skorinn í sneiðar

Ólífuolía

Salt og pipar

Aðferð:

Setjið smá slettu af ólífuolíu á pönnu. Setið paprikuna og laukinn út á og saltið og piprið. Steikið við vægan hita þar til laukurinn er farinn að brúnast og paprikan orðin mjög mjúk. Tekur alveg um 10 – 15 mín.

Samsetning:

Hitið tortillurnar á þurri pönnu. Setjið mangó salsa, steikt grænmeti, tempura rækjur, tómata, avocado, chipotle sýrðan og ferskt kóríander yfir.

Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading