Stórkostleg eplaterta með karamellukremi og kanileplum

Þessi eplaterta er dásamlega bragðgóð, fögur og heimilisleg í senn.  Hún samanstendur af þremur mjúkum botnum sem innihalda gnótt smátt skorrinna Venosta epla auk karamellu og kanils. Á milli laganna er vel þeytt karamellukrem og karmellíseruð kanilepli. Tertan er svo toppuð með en meiru af kanileplum og heimagerðri karamellusósu. Þetta er kaka sem slær í gegn á veisluborðum en hentar líka einstaklega vel sem helgarkaka með góðu kaffi. Hún er einföld í samsetningu, en útkoman er bæði falleg og ljúffeng. Tertan bragðast best þegar hún hefur fengið að standa aðeins svo eplin og karamellan blandist vel við kremið. Fullkomin kaka fyrir þá sem elska epli og karamellu!

Innihald:

  • 3 rauð lífræn Venosta epli, skorin mjög smátt (375g)
  • 2 msk. púðursykur
  • 2 tsk. kanill
  • 3 bollar hveiti
  • 3 tsk. lyftiduft
  • 1 ¼ tsk. salt
  • 2 ½ tsk. kanill
  • 1 ½ bolli jurtaolía
  • ¾ bolli púðursykur
  • 1 ½ bolli sykur
  • 4 stór egg
  • 2 tsk. vanilludropar

Karamella:

  • 200g sykur
  • 90g smjör
  • 120ml rjómi
  • Saltklípa

Karamellukrem:

  • 250g smjör við stofuhita
  • 2 bollar flórsykur
  • ½ bolli karamellusósa
  • 1 tsk. vanilludropar

Kanilepli – á milli og ofan á tertuna:

  • 1 rautt lífrænt Venosta epli, skorið mjög smátt
  • 15g smjör
  • 1 msk. púðursykur
  • ½ tsk. kanill

Aðferð:

  1. Byrjið á því að saxa eplin, setjið í skál ásamt púðursykri og kanil og setjið til hliðar.
  2. Hitið ofninn í 160°C blástur.
  3. Smyrjið þrjú 20-22 cm. lausbotna kökuform.
  4. Blandið þurrefnum saman í skál og setjið til hliðar.
  5. Setjið olíu og sykur saman í hrærivélaskál og þeytið í 2-3 mín, skafið niður á milli,
  6. Bætið 1 eggi við og þegar það er samlagað setjið þá næsta egg út í. Endurtakið þar til öll eggin eru komin út í, þeytið á meðalhraða í 2-3 mín eða þar til blandan er orðin létt og ljós.
  7. Sigtið þurrefnin út í og blandið saman við með sleikju.
  8. Setjið kanileplin út í deigið og blandið einnig saman við með sleikju.
  9. Skiptið deiginu jafnt á milli formanna og bakið í 40-50 mín, tíminn fer eftir ofnum en botnarnir eru tilbúnir þegar prjóni sem stungið er í miðjuna kemur hreinn upp.
  10. Á meðan kakan bakast er karamellan útbúin:
  11. Setjið sykurinn í pott og bræðið. Þegar hann er orðinn djúp karamellubrúnn (varist að brenna sykurinn þó) er smjörinu hrært snögglega saman við.
  12. Þegar smjörið er samlagað sykrinum er rjómanum hellt saman við og pískað hratt þar til karamellan er komin saman. Setjið saltið út í og hellið strax í krukkur.
  13. Kælið botnana alveg. Á meðan útbúið þið kremið og kanileplin:
  14. Þeytið smjörið í nokkrar mínútur eða þar til það er orðið mjúkt og hvítnað vel.
  15. Bætið þá flórsykri, karamellunni og vanilludropum saman við og þeytið í nokkrar mínútur eða þar til það er orðið ljóst og loftmikið.
  16. Kanilepli: Saxið eplin, bræðið smjör á pönnu og setjið eplin út á. Bætið við púðursykri og kanil og steikið eplin þar til þau hafa mýkst vel og safinn gufað upp að mestu. Kælið.

Samsetning:

  1. Setjið botn á kökudisk og smyrjið lagi af kremi ofan á. Leyfið kreminu að ná aðeins hærra við brúnirnar til að mynda pláss fyrir eplin. Dreifið 1/3 af kanileplunum yfir botninn og setjið næsta botn ofan á. Endurtakið og setjið þá síðasta botninn ofan á.
  2. Smyrjið restinni af kreminu ofan á kökuna og setjið restina af kanileplunum ofan á og dreifið karamellu yfir eplin.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading