Sko, leyfið mér að útskýra! Mér fannst þetta frekar spes hugmynd þegar ég sá þessa mjólk frá Oatly. Freyðanleg haframjólk með poppkornsbragði! Hættið nú alveg… en! Ég er gjörsamlega kolfallin fyrir henni. Ég get bara ekki útskýrt það almennilega en bragðið er bara stórkostlegt og hún er algerlega fullkomin í allskonar kaffidrykki. Ég ákvað að vera í smá poppkornsþema og hafa karamellu með og úr varð einn sá besti latté sem ég hef smakkað. Svo er Oatly mjólkin auðvitað vegan og hentar því sérlega vel fyrir þau sem sneiða hjá mjólk og vilja jafnvel njóta þess að fá sér kaffidrykki án þess að maginn fari á hvolf.
Innihald:
- Karamellusósa í þykkari kantinum
- Tvöfaldur espresso eða 60 ml. rótsterkt kaffi
- Oatly barista kaffimjólk með poppkornsbragði
Aðferð:
- Byrjið á því að setja karamellusósuna í glas.
- Útbúið kaffið og flóið mjólkina.
- Hellið kaffinu í glasið og hellið mjólkinni rólega yfir kaffið.
- Dreifið karamellunni yfir froðuna og njótið!










Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

