Einfalt tagliatelle með kjúklingi & tómat mascarpone sósu

Ég er alltaf að reyna að finna góðar uppskriftir sem þó eru fljótlegar og einfaldar. Þessi er einmitt þannig, ég hugsa að það hafi tekið mig 20 mínútur að græja þennan rétt frá upphafi til enda. Hráefnin eru fá en útkoman er stórgóður pastaréttur sem allir í fjölskyldunni kunnu vel að meta. Það er vel hægt að nota tilbúinn kjúkling eða jafnvel rífa niður heilan kjúkling og setja út í sósuna. Þá mætti vel bæta við grænmeti eða hverju sem hugur ykkar girnist. Ég notaði Heinz pastasósu með tómat, grana padano og mascarpone en aðrar tegundir af sósu í sömu línu myndu einnig henta mjög vel.

Innihald:

  • 1 msk. ólífuolía
  • 2 stórar kjúklingabringur
  • Sjávarsalt & svartur pipar, magn eftir smekk
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 1 krukka Heinz pastasósa með tómat, grana padano og mascarpone
  • 50 ml. rjómi
  • 3 msk. söxuð fersk steinselja
  • 3-4 msk. rifinn parmesan ostur + auka til að bera fram með réttinum
  • 300g tagliatelle, ég notaði frá DeCecco
  • Súrdeigssnittubrauð

Aðferð:

  1. Skerið kjúklinginn í bita og hitið olíuna rólega upp á pönnu.
  2. Setjið kjúklinginn út á pönnuna og kryddið með salti, pipar og hvítlauksdufti. Steikið þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og farinn að brúnast.
  3. Bætið þá pastasósunni út á pönnuna og látið malla á meðan þið setjið vatn í pott fyrir pastað. Saltið vatnið ríflega.
  4. Þegar vatnið er farið að sjóða, setjið þá pastað út í og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
  5. Bætið rjóma og ferskri steinselju út í sósuna og hrærið. Leyfið sósunni að ná aftur upp hita án þess að sjóða og bætið þá parmesan ostinum saman við.
  6. Hellið vatninu af pastanu og skerið brauðið í sneiðar. Setjið pastað í skál ásamt kjúklingnum.
  7. Ég mæli með því að rífa vel af parmesan yfir og njóta með brauðinu.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading