Súkkulaði salami er sérstaklega skemmtilegur og gómsætur eftirréttur sem rekja má uppruna sinn til Ítalíu eftirstríðsáranna en einnig má finna svipaðar útgáfur í Portúgal og Frakklandi. Í svona súkkulaði salami er gjarnan sett dökkt súkkulaði, smjör, hnetur, kex og þurrkaðir ávextir. Jafnvel smávegis líkjör líka. Það er hægt að nota hvers kyns kex og annað eftir smekk. Hér notaði ég mitt allra uppáhalds súkkulaði, 70% súkkulaðið frá Rapunzel sem hefur svo gott jafnvægi en það er alls ekki biturt þrátt fyrir hátt kakóinnihald. Ég notaði síðan glútenlausa kexið frá Nairns ásamt ristuðum heslihnetum og þurrkuðum bláberjum. Útkoman er algerlega stórkostleg, sætur biti sem passar sérlega vel með snarpheitu kaffi.
Súkkulaði salami-ið er glútenlaust og auðvelt að gera það vegan!
Innihald:
- 150g 70% súkkulaði frá Rapunzel
- 70g smjör
- 40 ml. nýmjólk
- 4 msk. kakó, ég notaði frá Rapunzel
- Smá klípa sjávarsalt
- 100g kex, ég notaði glútenlaust kex frá Nairn‘s
- 45g ristaðar heslihnetur, ég notaði frá Rapunzel
- 40g þurrkuð bláber, ég notaði frá Rapunzel
- Flórsykur
Aðferð:
- Byrjið á því að rista heslihneturnar. Ég set þær á ofnplötu og rista í 10-15 mín við 175°C. Takið þær þá úr ofninum og setjið á þurrt viskastykki. Nuddið mestu af hýðinu af. Kælið.
- Saxið súkkulaðið og setjið í hitaþolna skál. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
- Setjið smjörið út í súkkulaðið og hrærið saman.
- Brjótið kexið í litla bita og setjið til hliðar.
- Hellið mjólkinni í nokkrum skömmtum út í súkkulaðið og hrærið vel á milli. Bætið þá kakóinu og saltinu saman við og hrærið.
- Saxið hneturnar gróft og blandið saman við súkkulaðið ásamt kexi og bláberjum.
- Rífið örk af bökunarpappír og setjið á borð. Skafið súkkulaðinu á pappírinn og mótið gróflega í ílangan hleif.
- Setjið bökunarpappír yfir hleifinn og rúllið fram og til baka nokkrum sinnum þannig að úr verði pylsa. Einnig er hægt að nota matarfilmu en hún gæti rifnað ef ekki er farið varlega. Þegar pylsan er nokkurnveginn eins og þið viljið hafa hana, snúið þá upp á endana og setjið í kæli. Kælið í 6 klst. eða yfir nótt.
Glútenlaus uppskrift!









Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

