Súkkulaðibitakökur með þreföldu súkkulaði – frá Brauð & Co

 Þessar kökur eru svo rugl góðar, ekki mikið mál að gera þær og auðvelt að frysta þær óbakaðar. Brauð & Co voru svo dásamlegir fyrir jólin að birta þessa uppskrift á instagramminu sínu og var búin að taka skjáskot af uppskriftinni fyrir löngu síðan en ákvað núna að skella í þær. Sé ekki eftir neinu!
Ég fór „nánast“ alveg eftir uppskriftinni en í mínum ofni þurfti ég að baka kökurnar töluvert lengur en þær voru samt mjög mjúkar í miðjunni. Ég kældi líka deigið aðeins áður en ég bakaði þær og ég mæli alltaf með því þegar svona smákökur eru bakaðar. 
Takk fyrir mig!


Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading