Heit súkkulaðibaka með karamellukremi, karamellukurli og vanilluís

 

Heit súkkulaðibaka
með karamellukremi, karamellukurli og vanilluís

Ef þig vantar eitthvað fljótlegt til þess að bera fram í
saumó, eftirrétt í matarboðið eða eitthvað ljúffengt í afmælisveisluna þá er
þessi baka alveg fullkomin. Hún er algjör draumur fyrir sanna unnendur
súkkulaðis enda algjörlega nóg af því hér. Í henni er kaffi sem má vissulega
sleppa og nota t.d mjólk í staðinn en ég mæli með því að prófa það þar sem það
dregur fram bragðið af súkkulaðinu án þess að það finnist kaffibragð. Einnig er
mjög mikilvægt að setja smá salt í allar súkkulaðikökuuppskriftir þar sem það
skerpir á súkkulaðibragðinu. Ég nota hérna bæði 45% og 70% suðusúkkulaði frá
Nóa Síríus sem og saltkaramellufyllta Pralín súkkalaðið frá Nóa í kremið.
Toppurinn yfir i-ið er svo karamellukurlið sem fullkomnar alveg bökuna. Að mínu
mati er alveg bráðnauðsynlegt að bera fram ís eða rjóma með bökunni sem gefur ákveðið
jafnvægi á móti súkkulaðinu.

Brjálæðislega góður desert sem þú verður að prófa!

 

Innihald:

120g púðursykur

220g sykur

180g mjúkt smjör

1 msk vanilludropar

2 stór egg við stofuhita

60ml kalt sterkt kaffi

4 msk kakóduft frá Síríus Sælkerabakstri

1 tsk matarsódi

320g hveiti

½ tsk mulið sjávarsalt

150g Síríus suðusúkkulaði, saxað

150g Síríus suðusúkkulaði 70%, saxað

 

Ofan á kökuna:

100g Síríus Pralín súkkulaði með saltkaramellufyllingu

3 msk rjómi

Karamellukurl frá Síríus Sælkerabakstri eftir smekk

 

 

Aðferð:

Byrjið á því
að hita ofninn í 180°C blástur

Saxið
súkkulaðið og setjið til hliðar og útbúið kaffið og látið kólna.

Setjið
púðursykur, sykur, smjör og vanilludropa í skál og þeytið saman. Setjið eitt
egg út í í einu og þeytið vel á milli. Þeytið blönduna þar til hún er orðin
ljós og létt.

Blandið kakói
og köldu kaffi saman við og þeytið.

Setjið hveiti,
matarsóda og salt saman við og blandið saman með sleikju. Setjð saxað súkkulaði
saman við að síðustu.

Smyrjið
ofnfast mót í meðalstærð og smyrjið deiginu í formið. Bakið í 30 mín.

Útbúið karamellukremið
með því að brjóta súkkulaðið og setja í lítinn pott ásamt rjómanum. Bræðið
saman og takið af hellunni.

Takið kökuna
út, látið mesta hitann rjúka úr henni, „drizzlið“ kreminu yfir kökuna og toppið
með karamellukurli. Berið fram með vanilluís eða rjóma.


Unnið í samstarfi við Nóa Síríus.

Recommended Articles

Leave a Reply