Þessar kúlur eru algjörlega ómótstæðilegar og hugsanlega gætu þær ekki verið einfaldari! Aðeins 4 innihaldsefni og það tekur enga stund að græja þær. Það mætti segja að þær séu mitt á milli þess að vera sælgæti og bakkelsi. Stökkt kexið passar ótrúlega vel með hnetusmjörinu og súkkulaðismyrjunni og mjólkursúkkulaðið fullkomnar svo bomburnar.

Þessar verðið þið að prófa!

 

Innihald:

150g Nairn‘s hafrakex með súkkulaði

70g hnetusmjör, fínt

40g súkkulaðismyrja, ég notaði frá Rapunzel en það er líka hægt að nota aðrar tegundir

100g mjólkursúkkulaði, ég notaði Rapunzel

Aðferð:

  1. Setjið kexið í matvinnsluvél og vinnið smátt.
  2. Bætið hnetusmjörinu og súkkulaðismjörinu út í matvinnsluvélina og vinnið þar til þétt deig myndast.
  3. Mótið kúlur um það bil 2 cm í þvermál. Kælið.
  4. Saxið mjólkursúkkulaðið og setjið í hitaþolna skál. Bræðið súkkulaðið í örbylgjuofninum. Gott er að hita það í 15 sekúndur í einu og hræra á milli. Þegar það er að mestu bráðið en nokkrir bitar eru enn í því er gott að taka það út og hræra í því. Hitastigið þarf að vera 40-45°C.
  5. Hjúpið hverja kúlu með súkkulaðinu og leggið á bökunarpappír, skreytið með smávegis af muldu kexi.
  6. Setjið kúlurnar í kæli í smástund og njótið!

 

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading