Þessi einföldu en algerlega stórkostlegu súkkulaðibrot eru fullkomin þegar þig langar í eitthvað fallegt, fljótlegt og bragðgott. Ég bræddi dökkt súkkulaði og smurði á bökunarpappír og toppaði með þurrkuðum berjum sem gefa sætt en örlítið súrt bragð, stökkum ristuðum möndlum og kókosmjöli. Þegar súkkulaðið kólnaði í óreglulega bita. Þetta er gómsætt, næringarríkt sælgæti sem er tilvalið í göngur, bjóða upp á í saumaklúbbnum eða jafnvel sem falleg handunnin gjöf.
Þurrkaða berjablandan er nýjung frá Rapunzel og hef aðeins verið að leika mér með notkun á þeim. Ég hef sett þau út á jógúrt með granóla og einnig toppað hafragraut með þeim sem er einnig algert sælgæti en þessi súkkulaðibrot eru líklega á toppnum.
Innihald:
- 240g 70% súkkulaði frá Rapunzel
- Þurrkuð blönduð ber frá Rapunzel, magn eftir smekk
- Ristaðar möndlur frá Rapunzel, magn eftir smekk
- Kókosmjöl frá Rapunzel, magn eftir smekk
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og dreifið möndlum á plötuna. Ristið í ofninum í ca. 10 mín. Kælið.
- Bræðið súkkulaðið annað hvort í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði. Setjið bökunarpappírsörk á bretti.
- Saxið möndlurnar og hafið berin og kókosmjölið tilbúið.
- Dreifið súkkulaðinu yfir bökunarpappírinn, best er að þykktin sé um 2-4 mm.
- Stráið berjum, möndlum og kókos eftir smekk yfir súkkulaðið og leyfið því að kólna. Brjótið í hæfilega bita og berið fram.







Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

