Ef einhver eftirréttur eða kaka kemur með sólina þá er það þessi. Bragðgóð og fersk og passar sérlega vel á hvaða veisluborð sem er. Hindberin passa sérlega vel með sítrónu og lime og leynivopnið er klárlega hið klassíska kremkex frá Frón sem við þekkjum öll. Það passar einstaklega vel í ostaköku og skyrkökubotna eins og hér þar sem það er milt á bragðið og vanillan á vel við svo margt.
Kakan er ekki flókin í gerð en það þarf að gefa sér smá tíma í hana og gera ráð fyrir því að það þarf góðan tíma í kælinguna.
Innihald:
180g Kremkex frá Frón
60g brætt smjör
Nokkur sjávarsaltkorn
Fylling:
1 stór dós vanilluskyr
70g flórsykur, sigtaður
150g rjómi, stífþeyttur
1 tsk vanilludropar
Hindberjablanda:
4 matarlímsblöð
200g frosin hindber
Börkur af 1 sítrónu og safinn af ½
Börkurinn af 1 lime og safinn af ½
50g sykur
2 msk maísenamjöl
Ofan á:
Fersk hindber
Raspaður sítrónubörkur
Flórsykur
Aðferð:
- Byrjið á því að setja kexið í matvinnsluvél ásamt salti og vinnið smátt. Bræðið smjörið og blandið saman við kexið.
- Setjið bökunarpappír í botninn á 18cm smelluformi og setjið kexblönduna ofan í. Þjappið vel og kælið á meðan fyllingin er gerð.
- Setjið matarlímið í kalt vatn. Setjið hindber í pott ásamt sykri, sítrónu og lime safa ásamt berki, maísena mjöli og matarlímsblöðum þegar þau hafa mýkst upp.
- Hitið allt saman, stappið berin aðeins í pottinum og látið malla í nokkrar mínútur á vægum hita. Takið pottinn af hellunni og setjið sigti yfir skál. Þrýstið hindberjablöndunni í gegnum sigtið og reynið að ná eins miklum vökva og hægt er. Skiljið hratið eftir. Kælið niður í stofuhita.
- Setjið skyrið í skál ásamt flórsykri og vanillu og þeytið með písk. Stífþeytið rjómann í annarri skál og setjið til hliðar.
- Blandið hindberjablöndunni í skyrið með písknum, þegar það er samlagað, blandið þá rjómanum varlega saman við með sleikju.
- Takið kexbotninn úr kæli, hellið skyrblöndunni yfir og sléttið úr yfirborðinu með beygðum spaða eða skeið. Setjið aftur í kæli og kælið í minnst 6 tíma eða yfir nótt.
- Takið kökuna úr kæli og færið á disk, skreytið með ferskum hindberjum, dustið smá flórsykri yfir og skreytið með nýröspuðum lime og sítrónuberki.





Unnið í samstarfi við Frón.

