Hangikjötssalat er án efa besta brauðsalatið! Hér er það í klassískri útgáfu á dönsku rúgbrauði en það er alls ekki síðra á milli tveggja samlokubrauðsneiða.
Sígilt hangikjötssalat á dönsku rúgbrauði

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Hangikjötssalat er án efa besta brauðsalatið! Hér er það í klassískri útgáfu á dönsku rúgbrauði en það er alls ekki síðra á milli tveggja samlokubrauðsneiða.

Djúsí klúbbsamlokur með osti, beikoni, kjúklingaskinku, smjörsteiktum sveppum, salati og tómötum. Fljótlegar, einfaldar og ekta föstudagsmatur!

Brjálæðislega góð klúbbsamloka með beikoni, kjúklingi, avocado, tómötum, salati og bbq majónesi. Borin fram með frönskum og enn meira bbq majó!

Þessar samlokur eru sannarlega af betri gerðinni. Smávegis lúxus en samt svo einfaldar og fljótlegar. Á milli tveggja glænýrra sneiða af súrdeigsbrauði koma vænar sneiðar af brie osti, stökkt beikon, rifinn ostur, klettasalat og punkturinn yfir i-ið er sultaður balsamik laukur sem fullkomnar bragðið. Grillaðar í blússheitu samlokugrilli og bornar fram með fersku salati. Þær passa ótrúlega vel sem hádegisverður, léttur kvöldverður eða jafnvel á bröns bakka og þá jafnvel skornar í fleiri bita.