Góðar samlokur eru oft vanmetnar og mér finnst að þær ættu að fá aðeins meiri athygli. Hamborgarar eru sannarlega góðir og gildir en hvers vegna ekki að prófa að gera almennilegar veitingahúsasamlokur næst þegar ykkur langar í eitthvað verulega djúsí? Þessar eru á þremur hæðum, alls ekki flóknar en svo sjúklega góðar! Bbq majóið passar fullkomlega með álegginu og það er sjúklega gott að dýfa frönskunum í það. Ég skil hreinlega ekki af hverju fólk velur kokkteilsósu þegar það getur dýft í bbq majó. Þið verðið bara að prófa
Innihald:
3 samlokubrauðsneiðar, hvítar
1 msk. majónes
1 kjúklingabringa elduð, eða afgangar af kjúklingi
4 beikonsneiðar
4 tómatsneiðar
Avocado í sneiðum
Ferskt salat
Svartur pipar og sjávarsalt
Steikarfranskar
BBQ majó
1 dl. majónes, ég notaði Heinz Seriously Good Mayonnaise
2 msk. Hunt‘s Hickory BBQ sósa
Aðferð:
- Byrjið á því að elda kjúklingabringuna eða notið afgangskjúkling. Steikið beikonið
- Hrærið saman majónesinu og bbq sósunni.
- Eldið franskarnar eftir smekk, ég setti þessar í airfryer og það mjög vel út.
- Smyrjið aðra hliðina á þremur brauðsneiðum með majónesi og steikið á pönnu þar til brauðið er orðið stökkt og gyllt.
- Setjið eina brauðsneið á disk og smyrjið með bbq majó. Setjið salat, tómata, avocado, beikon og kjúkling á brauðsneiðina og saltið og piprið aðeins yfir kjúklinginn. Setjið aðra brauðsneið ofan á, smyrjið bbq majó og raðið áleggi aftur á eins og áður. Smyrjið þriðju brauðsneiðina með bbq majó og lokið samlokunni.
- Skerið horn í horn og berið fram með frönskum, bbq majó og ísköldu léttöli.
- Magnið miðast við eina þriggja hæða samloku.







Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

