Vatnsdeigsbollur með cappuccino fyllingu, saltkaramellu og Noir kexi

Allt með kaffibragði er gott og ég stend og fell með því. Þessa dagana er framboð á bollum í hámarki enda örstutt í bolludaginn. Þessi klassíska með sultu, rjóma og súkkulaðiglassúr á alltaf sinn sess á mínu heimili en svo er gaman að leika sér að allskonar fyllingum sem passa í klassísku vatnsdeigsbollurnar. Hérna útbjó ég alveg dásamlega fyllingu með ríkulegu kaffibragði og passar alveg sérlega vel með karamellunni og Noir kexinu frá Frón en það er hjúpað himnesku belgísku súkkulaði sem setur alveg punktinn yfir i-ið.

Gleðilegan bolludag!

Innihaldslýsing:

2dl vatn

80g smjör

125g hveiti

Salt á hnífsoddi

2-3 egg

Saltkaramellusósa, sjá uppskrift

Noir kex frá Frón

Cappuccino fylling

1 peli þeytanlegur hafrarjómi eða venjulegur rjómi

2 tsk instant kaffi

3-4 msk flórsykur

1 tsk vanilludropar

Nokkur saltkorn

Aðferð:

Setjið rjómann í skál og stráið instant kaffi yfir. Bíðið í nokkrar mínútur. Setjið þá flórsykur, vanilludropa og saltkorn saman við og þeytið þar til rjóminn verður stífur.

Saltkaramella:

200g sykur

90g smjör í bitum

120ml rjómi

1 tsk sjávarsalt

Aðferð:

Bræðið sykur við vægan hita og hrærið stöðugt í. Þegar sykurinn er bráðinn og orðinn vel gylltur, setjið þá smjörið saman við og hrærið rösklega í. Bætið þá við rjómanum og hrærið þar til karamellan er samlöguð. Setjið þá saltið út í og hrærið. Setjið strax í krukku.

 

Færslan er unnin í samstarfi við Ísam.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading