Paris-Brest er einn allra besti eftirréttur sem til er á jörðinni. Eða það finnst mér að minnsta kosti. Eftirrétturinn er upprunninn í Frakklandi eins og nafnið gefur til kynna og eru til ýmsar útgáfur af honum.

Yfirleitt er þetta vatnsdeig sem mótað er í hring og fyllt með pralín og vanillukremi (Crème Pâtissière). Það er eitthvað við þessa pralín-vanillukrems blöndu sem er algerlega ómótstæðilegt og það er ekki oft sem hægt er að nálgast þennan eftirrétt á Íslandi.

Ég var heillengi að prófa mig áfram með gerð þessarar bollu og gerði ótal útgáfur af henni. Þessi útgáfa kom lang best út. Bollan sjálf er úr smjördeigi sem er nánast án undantekninga vegan. Heimagerða pralínið er gert úr ristuðum heslihnetum og möndlum og vanillukremið úr haframjólk og hafrarjóma ásamt góðri vanillu og vegan smjöri. Þessi samsetning er algerlega himnesk og ég skora á ykkur að prófa þessa dýrð!

 

Innihald bollunnar:

2 rúllur smjördeig

Vegan vanillukrem (Uppskrift fylgir)

Heimagert Pralín (Uppskrift fylgir)

Ristaðar heslihnetur til skrauts

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C blástur.
  2. Rúllið deiginu út og skerið út kringlóttar kökur með móti eða glasi, stærðin fer eftir smekk en mér finnst betra að hafa þær ekki mikið stærri en 5cm.
  3. Leggið kökurnar á bökunarpappír, smyrjið hverja köku með hafrarjóma og leggið aðra köku yfir. Penslið yfir efri kökuna með hafrarjóma.
  4. Bakið í 15-20 mín þar til bollurnar eru orðnar gylltar. Takið bollurnar út og látið kólna.

 

Vegan vanillukrem

180ml Oatly ikaffe haframjólk

80ml Oatly visp hafrarjómi

1/2 tsk. vanillukorn

35g hrásykur

30g maizena mjöl

salt á hnífsoddi

25g vegan smjör mjúkt

 

Aðferð: 

  1. Setjið vanillukorn, hrásykur, maízena mjöl og salt saman í skál.
  2. Setjið mjólkina og rjómann saman í pott og hitið að suðu.
  3. Hellið ca. 1/4 af mjólkinni út í sykurblönduna og hrærið vel. Hellið restinni saman við smám saman.
  4. Setjið blönduna aftur í pottinn og sjóðið við vægan hita í 2-3 mín þar til búðingurinn þykknar. Takið pottinn af hellunni og hrærið smjörinu saman við með sleikju.
  5. Hellið búðingnum í sigti og þrýstið honum með sleikju í gegnum sigtið í skál. Setjið plastfilmu yfir og látið hana alveg snerta yfirborðið á búðingnum svo það komist ekki skán á hann. Kælið í að minnsta kosti 2-3 klst áður en hann er notaður.

 

Hafrarjóminn

1 peli hafrarjómi frá Oatly

1 tsk vanilludropar

1 tsk sítrónusafi

Þeytið allt vel saman þar til rjóminn er stífþeyttur.

 

Pralín

120g möndlur

120g heslihnetur

150g sykur

 

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 150°C blástur.
  2. Setjið bökunarpappír á plötu og dreifið hnetunum á plötuna. Ristið í ofninum í 15 mín.
  3. Setjið hreint viskastykki á borðið og hellið hnetunum á það. Nuddið hýðið af þeim með því að nudda þær saman viskastykkinu. Athugið að hýðið fer ekki af möndlunum.
  4. Bræðið sykurinn þar til hann verður og aðeins farinn að dökkna, varist að brenna hann.
  5. Hellið yfir hneturnar og látið kólna alveg.
  6. Setjið í matvinnsluvél og vinnið í að minnsta kosti 10 mín. Fyrst myljast hneturnar með sykrinum og eru nánast eins og granóla, haldið áfram að láta vélina vinna og skafið niður á milli ef þarf. Hafið bara trú á ferlinu, eftir nokkrar mínútur fer þetta að breytast í „smjör“, haldið þá áfram að vinna svo áferðin verði fínleg á pralíninu.

 

Samsetning:

  1. Blandið saman kreminu við rjómann í hlutföllunum 1/4 krem á móti 3/4 rjóma. Kremið er frekar stíft beint úr kæli og það er gott að hræra aðeins í því áður en því er blandað saman við rjómann. Hlutföllin eru: 1 msk krem á móti 4 msk af rjóma. Það má auðvitað leika sér með hlutföllin eftir smekk. Mér finnst best að setja kremið á bolluna með því að setja það í sprautupoka.
  2. Skerið bollu í tvennt. Smyrjið botninn með pralíni og sprautið vanillukremrjóma yfir. Setjið lokið á, sprautið smá rjómakremi á toppinn og skreytið með ristuðum heslihnetum.

 

Færslan er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Recommended Articles

Leave a Reply

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading