Þessar bollur eru alveg dásamlegar, svo góðar nýbakaðar og ylvolgar. Uppskriftin birtist fyrst á grgs.is fyrir nokkrum árum og hef bakað þær reglulega síðan.

Ég mæli með því að prófa að setja bara smjör á þær eða eitthvað af þessum dásamlegu kremum sem fást frá Rapunzel. Ég nota lífrænt 70% súkkulaði frá Rapunzel í þær og mér finnst það lykilatriði að nota dökkt gæðasúkkulaði í bollurnar. Kanillinn gefur líka mjög gott bragð og algjört möst að hafa hann með.

Innihaldslýsing:

1 1/4 bolli lífræn haframjólk frá Oatly

15g þurrger

3 1/2 bolli lífrænt hveiti

1/2 tsk salt

1/2 bolli rapadura hrásykur frá Rapunzel

2 tsk kanill

1 egg lífrænt + 1 egg til þess að pensla með

1/4 bolli fljótandi kókosolía

160g 70% súkkulaði frá Rapunzel, eða 2 plötur saxaðar

Aðferð:

  • Hitið haframjólkina upp í 37°C. Setjið gerið út í og hrærið aðeins. Látið bíða í 5 mín eða þangað til það fer að freyða.
  • Setjið öll þurrefni saman í hrærivélaskál og hrærið með króknum
  • Setjið mjólkina ásamt geri saman við, kókosolíu og egg og hrærið þar til deigið er aðeins farið að loða saman. Setjið þá súkkulaðið saman við og látið vélina vinna í 5 mín á rólegum hraða.
  • Takið krókinn af, hnoðið deigið í kúlu og setjið aftur í skálina og plastfilmu yfir.
  • Látið hefast í 45 mín.
  • Mótið 12-14 bollur og setjið á ofnplötu klædda bökunarpappír.
  • Hitið ofninn í 45°C og úðið vel að innan með vatni. Úðið yfir bollurnar og setjið þær í ofninn og látið hefast í ofninum í 20 mín.
  • Takið plötuna útúr ofninum og stillið hann á 200°C, þeytið egg með gaffli og penslið yfir bollurnar á meðan ofninn er að hitna.
  • Bakið bollurnar í 10-15 mín eða þar til þær eru orðnar vel gylltar.

Færslan er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Recommended Articles

Leave a Reply

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading