Þegar þú vilt gera svolítið vel við þig og þína er þetta einstaklega meyra og bragðgóða lambafille fullkomin máltíð. Hunangsbakaða grænmetið passar svo sérlega vel með.
Lambafille black garlic með kryddjurtasmjöri og hunangsbökuðu rótargrænmeti

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Þegar þú vilt gera svolítið vel við þig og þína er þetta einstaklega meyra og bragðgóða lambafille fullkomin máltíð. Hunangsbakaða grænmetið passar svo sérlega vel með.

Ljúffeng & sumarleg máltíð sem tekur einungis 15 mínútur að græja! Forsoðin rifin fara beint á grillið, maísinn með og franskarnar hitaðar á meðan.

Grillaðar nautalundir eru fullkomnar ef þú vilt gera virkilega vel við þig í mat. Þessar steikur eru maríneraðar í stórkostlegum trufflu og black garlic kryddlegi og svo grillaðar á blússheitu grilli. Með þeim bar ég fram bakaðar kartöflur með trufflusmjöri og stórkostlega grænpiparsósu sem allir munu biðja uppskriftina að!

Ótrúlega fljótleg og bragðgóð hvítlaukspítsa sem tekur enga stund að græja! Fullkomin sem forréttur eða meðlæti með pastaréttum. Nú eða bara eins og sér!

Aðeins öðruvísi pylsuveisla en þessar hefðbundnu! Grillaðar smápylsur frá Kjarnafæði með mexíkósu meðlæti bornar fram á grilluðum taco kökum, allir elska þessar

Lamba prime er bragðgott og meyrt kjöt sem hentar ljómandi vel á blússheitt grillið. Borið fram með gremolata aioli, stökkum kartöfluteningum og fersku salati.

Ljúffengar eldbakaðar pítsur sem verða til á örskotsstundu í pítsaofninum heima. Með tilbúnu deigi og álegginu frá Kjarnafæði færðu fullkomnar föstudagspítsur!

Ólýsanlega góðar grísalundir með bragðmiklum kryddhjúp og hunangssinneps gljáa. Rjómalöguð sósan er að sama skapi líkt og hún sé af öðrum heimi, svo góð er hún!