Jólalegar og bragðgóðar smákökur sem gaman er að bera fram. Það mætti jafnvel segja að þær séu blanda af piparkökum og lagtertu sem skreyttar eru með kökuskrauti.
Mjúkar piparkökusamlokur með smjörkremi og jólaskrauti

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Jólalegar og bragðgóðar smákökur sem gaman er að bera fram. Það mætti jafnvel segja að þær séu blanda af piparkökum og lagtertu sem skreyttar eru með kökuskrauti.

Hangikjötssalat er án efa besta brauðsalatið! Hér er það í klassískri útgáfu á dönsku rúgbrauði en það er alls ekki síðra á milli tveggja samlokubrauðsneiða.

Stórkostlegar súkkulaðibitakökur sem þú átt eftir að baka aftur og aftur. Pakkaðar af súkkulaði, stökkar að utan en mjúkar að innan!

Það er ótrúlega einfalt að gera þessa bita og það tekur heldur enga stund. Hérna sameinast nokkur uppáhalds element og aðdáendur hnetusmjörs og súkkulaði tvennunnar verða alls ekki sviknir af þessum bitum! Innihald: 300g Oreo kexkökur 115g smjör 300g mjólkursúkkulaði …

Einfalt og ljómandi gott vegan jólakonfekt. Fá hráefni og öll geta föndrað við að útbúa það. Döðlu og kókossmjörið gerir allt svo miklu betra!

Þessar pönnukökur eru tilvaldar í jólabrönsinn eða jólaboðið. Karamellan er eins og fljótandi piparkökur og stökkar pekanhneturnar setja punktinn yfir i-ið.

Ljúffengar stökkar súkkulaðivöfflur sem tekur enga stund að skella í. Þeytta vanillukremið er fullkomið með!

Einföld og dásamlega ljúffeng skúffukaka með góðu kryddbragði og flöffí rjómaostakremi. Kakan er vegan og hentar því einnig mörgum með fæðuóþol.