Fersk skyrkaka með lemon curd og bláberjum

Það fer fátt betur með bláberjum en sítrónur og hérna parast þetta saman í geggjuðum desert. Þessi skyrkaka er mjög einföld og frískleg og hentar sérlega vel í grillveislur t.d.

Í kökuna nota ég bláberjaskyr, það er auðvitað alveg sérlega gott eitt og sér en hentar einnigmjög vel í kökur sem þessar.  Það er hægt að gera þennan desert daginn áður og verður jafnvel bara betri ef eitthvað er.

Innihald:

200g heilhveitikex, t.d Digestive eða Haust

120g mjúkt smjör

2 litlar dósir bláberjaskyr

300ml rjómi

1 tsk vanilludropar

4 msk sykur

4 matarlímsblöð (má sleppa)

3 msk ferskur sítrónusafi (sleppið ef matarlímið er ekki notað)

Bláberjasulta eftir smekk

Lemon curd, magn eftir smekk – heimagert eða keypt tilbúið

Aðferð:

  •  Myljið kexið smátt í matvinnsluvél, bætið mjúku smjörinu saman við og vinnið þar til það er blandað saman við mylsnuna.
  • Þrýstið kexblöndunni í form eða skál eftir smekk.
  • Setjið skyr í skál og hrærið því saman svo bláberin í botninum blandist saman við skyrið. Þeytið rjómann með flórsykrinum og vanilludropunum. Blandið rjómanum saman við skyrið með sleikju.
  • Setjið sítrónusafann í pott og matarlímsblöð í bleyti í kalt vatn í smástund. Þegar matarlímið er orðið mjúkt, kreistið vatnið úr því og setjið í pottinn með sítrónusafanum. Bræðið matarlímið við vægan hita. Þegar það er bráðið, takið pottinn af hellunni og blandið saman við skyrblönduna. Athugið að þessu skrefi má sleppa en kakan verður stífari við þetta.
  • Hellið skyrblöndunni yfir kexið og jafnið út. Setjið lemon curd og bláberja sultu til skiptis á toppinn og dreifið aðeins úr með skeið eða prjóni.
  • Kælið í að minnsta kosti 1 klst, helst lengur.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading