Ég, eins og mörg, er alveg sérlega mikil pítsukona. Fátt er betra en góð pítsa og á nokkrum pítsustöðum er hægt að fá pítsur með ríflegu magni af áleggi og ganga undir nöfnum eins og Pavarotti eða Extra. Þessi samsetning er mjög amerísk og vinsæl þar en því ekki að prófa að blanda þessum hráefnum saman í djúsí kjúklingarétt. Útkoman er svona framúrskarandi góð og þessi blanda er ekkert síðri pöruð með kjúkling og ostasósu.
Innihald:
900g kjúklingabringur eða lundir kryddaðar með salti og pipar
2 msk olía
1 rauðlaukur
4 – 6 miðlungsstórir ferskir sveppir
1/2 græn paprika
12-16 pepperónísneiðar
Svartar ólífur í sneiðum, má sleppa
200g pizzaostur frá MS Gott í matinn
Þurrkað oregano
Rjómaostasósa
1 pepperóní kryddostur frá MS Gott í matinn, skorinn í litla bita
150ml vatn
1 msk kjúklingakraftur
2-3 msk hreinn rjómaostur frá MS Gott í matinn
2 msk tómatpúrra
1 msk þurrkað oregano
1 tsk þurrkuð basilika
1 tsk hvítlauksduft
Salt og pipar eftir smekk
200ml rjómi frá MS Gott í matinn
Leiðbeiningar:
- Kryddið kjúklinginn og skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar. Hitið olíu á pönnu og setjið laukinn út á. Steikið laukinn í þar til hann fer að mýkjast, bætið kjúklingnum út á pönnuna og brúnið. Það þarf ekki að gegnumsteikja kjúklinginn á þessu stigi. Setjið kjúklinginn og laukinn í eldfast mót.
- Útbúið sósuna og hellið yfir kjúklinginn.
- Setjið helminginn af sveppunum og paprikunni yfir sósuna og stráið rifna ostinum yfir.
- Raðið pepperóní, restinni af sveppunum og paprikunni ásamt ólífum ef vill. Bakið í 200°C heitum ofni.







Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

