Everything but the bagel kryddblandan er ein af mínum uppáhalds. Beyglur með þessu kryddi eru auðvitað mjög góðar en það er hægt að nota þessa blöndu á og í allskonar annað. Mig langaði í einhver góð ostahorn og því alveg gráupplagt að smella þessu saman. Ég nota hérna hreina mozzarella ostinn frá Örnu. Hann er auðvitað laus við laktósa og passar á allt og með öllu. Þessi horn er upplagt að frysta og taka með eitt og eitt út eftir þörfum. Einnig er hægt að skella þeim frosnum í nestibox og þau verða þá tilbúin þegar kemur að nestistímanum.
Innihald:
600g brauðhveiti (ég nota þetta bláa frá Kornax)
100g heilhveiti
50g sykur
2 tsk sjávarsalt
4 tsk þurrger
4 dl volgt vatn
1 dl jurtaolía
1 dós smurostur að eigin vali
80g pepperóní skorið í litla bita
200g rifinn ostur
Everthing but the bagel krydd, fæst t.d frá Pottagöldrum, Badia ofl framleiðendum.
1 egg hrært, til að pensla
Aðferð:
- Blandið saman öllum þurrefnum í hrærivélaskál, velgið vatnið að 37°C. Notið krókinn til þess að hræra fyrst saman þurrefnunum. Bætið vatni og olíu út í og látið hrærivélina hnoða í 5 mín.
- Mótið deigið í kúlu og látið hefast í skálinni undir plastfilmu í 40 mín.
- Takið deigið úr skálinni og skiptið í 4 hluta. Fletið út hvern hluta í hring og skiptið í 8 hluta með pizzahjóli eða beittum hníf. Setjið smurost, pepperóní og smávegis af mozzarella á hverja sneið.
- Takið fyrst breiðasta hlutann og teygið saman og rúllið svo upp sneiðunum. Ég nota þessa aðferð frekar en að rúlla beint til þess að fyllingin leki ekki öll út.
- Raðið hornunum á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Þegar þið eruð búin að útbúa öll hornin og raða á plötur, sláið þá saman egginu og penslið hornin og stráið ríflegu magni af kryddblöndunni yfir.
- Hitið ofninn í 45°C og setjið plöturnar inn. Úðið ofninn að innan með vatni og hefið í 30 mín í ofninum. Takið þá plöturnar út.
- Hitið ofninn í 220°C og setjið plöturnar aftur inn og bakið í 10-15 mín eða þar til hornin eru fallega gyllt.





