Marokkóskt kúskús salat með kjúklingabaunum og ofnbökuðu grænmeti

Þegar það fer að kólna í veðri finnst mér óskaplega gott að færa mig meira yfir í rétti sem innihalda ofnbakað grænmeti, hvort sem það er meðlæti eða aðalréttur. Þetta kúskús salat getur vel verið hvorttveggja, létt máltíð eða meðlæti með öðrum mat. Það er litríkt og inniheldur nokkur dásamleg ilmandi krydd sem verma kroppinn um leið. Kúskús er svo skemmtilegt hráefni og hægt að leika sér endalaust með það. Svo er þessi réttur líka vegan og hnetulaus. Það væri líka hægt að gera hann glútenlausan með því að nota kínóa auk þess sem það er hægt að nota nokkurn veginn hvaða grænmeti sem er, tilvalinn réttur til að nýta það sem til er.

Innihald:

  • 1 gul paprika
  • 1 rauð paprika
  • 1 kúrbítur
  • 3 gulrætur
  • 1 stór rauðlaukur
  • 100g kokkteiltómatar
  • 30g ólífuolía, ég notaði frá Rapunzel
  • 2 tsk. broddkúmen
  • 1 tsk. reykt paprikuduft
  • 2 tsk. kóríander malað
  • ½ tsk. túrmerik
  • 1 – 1 ½ tsk. sjávarsalt
  • Nýmalaður svartur pipar
  • 1 bolli vatn
  • 1 gerlaus grænmetisteningur, ég notaði frá Rapunzel
  • 1 bolli kúskús frá Rapunzel
  • 1 dós kjúklingabaunir, ég notaði frá Rapunzel
  • Ferskt kóríander

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C blástur.
  2. Skerið grænmetið: Paprikurnar, kúrbítinn og gulræturnar í bita. Skerið rauðlaukinn í tvennt og svo í sneiðar. Skerið tómatana í tvennt. Setjið svo grænmetið í skál.
  3. Dreifið olíunni yfir og stráið kryddunum þar yfir og veltið öllu saman. Dreifið grænmetinu í ofnskúffu og bakið í 30-40 mín. Veltið grænmetinu einu sinni til tvisvar á meðan það er í ofninum.
  4. Setjið vatn í lítinn pott ásamt grænmetisteningi. Þegar vatnið byrjar að sjóða, setjið þá kúskúsið út í, hrærið í því. Takið pottinn af hellunni, setjið lokið á og leyfið því að standa þar til grænmetið er tilbúið.
  5. Hellið kjúklingabaununum í sigti og skolið með köldu vatni.
  6. Þegar grænmetið er tilbúið, setjið það þá í stóra skál ásamt kjúklingabaunum og kúskúsinu. Setjið saxað ferskt kóríander saman við og berið strax fram.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading