Þessi kaka er alveg stórgóð og sérlega einföld. Hún er vegan og það þarf engin flókin áhöld eða tæki til þess að græja hana. Hún er létt í sér og ég get svo svarið það að það er smá vor í henni. Oatly visp hafrarjóminn setur bókstaflega punktinn yfir i-ið og fer sérlega með ljósum botninum og ferskum berjum.
Innihald:
240ml vegan jógúrt, ég notaði hreina Oatly
Börkur og safi úr einni sítrónu
1/2 tsk möndludropar
1/2 tsk sítrónudropar
80g jurtaolía
220g sykur
80g möndlumjöl
225g hveiti
1 tsk matarsódi
1/2 tsk lyftiduft
salt á hnífsoddi
60ml haframjólk, ég notaði Oatly ikaffe
Jarðarber, hindber, bláber, rifsber – magn eftir smekk
Vanillu rjómakrem:
1 peli Oatly Visp
3 msk flórsykur
1 tsk vanilludropar
1/2 tsk sítrónusafi
Salt á hnífsoddi
Aðferð:
Setjið öll hráefni í skál og stífþeytið. Smyrjið á kalda kökuna og skreytið með berjum eftir smekk.
Aðferð:
- Hitið ofninn í 170°C blástur.
- Blandið saman þurrefnum í miðlungsstóra skál og blautefnum í aðra skál og hrærið með písk.
- Hellið blautefnum saman í þurrefnin og hrærið með sleif. Smyrjið 20cm form og setjið bökunarpappír í botninn. Smyrjið deiginu í formið og bakið í 35-40 mín. Fylgist vel með eftir svona 30 mín þar sem ofnar geta verið misjafnir.
- Kælið botninn. Útbúið kremið og smyrjið á kalda kökuna. Skreytið með berjum eftir smekk.










Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

