Rice Krispies marengsterta með Pipp fyllingu, Nóa kroppi og Pipp kremi

Konudagurinn er á næsta leyti og hefð hefur skapast fyrir því að gera góðar tertur í tilefni dagsins. Mig langaði að gera einhverja almennilega marengstertu og prófa að nota nýja Royal búðinginn með Pipp bragðinu í fyllinguna. Ég ákvað því að prófa að blanda búðingnum saman við þeyttan rjóma og nota fylltu Pipp súkkulaðiplöturnar í eitthvað geggjað krem sem ég setti á milli botnanna og ofan á tertuna. Útkoman er vægast stórkostleg og óhætt að segja að tertan hafi horfið líkt og dögg fyrir sólu þegar ég bar hana á borð.

Dásamleg terta fyrir alla unnendur góðra marengsterta og piparmyntusúkkulaðis!

Rice Krispies marengs

2dl eggjahvítur eða 6 eggjahvítur af stórum eggjum, við stofuhita

360g sykur

½ tsk cream of tartar

1 tsk maizenamjöl

60g Rice Krispies

Pipp fylling

1 pakki Royal Pipp búðingur

350ml nýmjólk

300ml stífþeyttur rjómi

Pipp krem

100g Síríus pralín súkkulaði með pippfyllingu

100g Síríus pralín súkkulaði 56% dökkt með pippfyllingu

80ml rjómi

Nóa kropp

Blóm til skrauts

Aðferð:

Hitið ofninn í 130°C blástur.

Setjið eggjahvíturnar í skál og byrjið að þeyta, vigtið sykurinn og setjið hann saman út í eggjahvíturnar í smá skömmtum. Skafið niður í skálinni á milli ef þarf. Þeytið þar til sykurinn er uppleystur, bætið þá cream of tartar og maizena mjöli saman við og hrærið í nokkrar sekúndur í viðbót.

Setjið Rice Krispies saman við með sleikju.

Teiknið 3 hringi á bökunarpappír, ca 18-20cm í þvermál. Ég nota oft disk eða botn úr lausbotna formi.

Skiptið deiginu jafnt á milli og mótið botna. Bakið í 90 mín og látið kólna í ofninum, helst yfir nótt.

Fylling:

Setjið 350ml af nýmjólk í skál og setjið búðingsduftið saman við. Þeytið með handþeytara eða písk þar til búðingurinn er samlagaður. Setjið skálina í kæli og kælið í 15 mín.

Hellið rjóma í skál og þeytið þar til hann er orðinn eins stífur og hægt er án þess að hann verði að smjöri. Takið kalda búðinginn og blandið honum saman við rjómann með sleikju.

Pipp krem:

Setjið rjóma í pott og brjótið súkkulaðið út í. Bræðið saman á vægum hita, það gæti þurft að hræra aðeins rösklega með písk í lokin til þess að fyllingin sé alveg bráðin við súkkulaðið. Látið kólna að mestu við stofuhita.

Samsetning:

Setjið 1 botn á kökudisk. Dreifið kremi yfir botninn, þar næst 1/3 af rjómafyllingunni, stráið þá Nóa kroppi eftir smekk yfir rjómann. Setjið annan botn yfir og endurtakið. Setjið síðasta botninn ofan á, rjómafyllingu þar næst, Pipp krem þar yfir og skreytið með Nóa kroppi og blómum. Það er gott að láta tertuna bíða aðeins áður en hún er borin fram til þess að hún verði búin að taka sig og mýkjast upp.

Recommended Articles

Leave a Reply