Þessi terta er dásamlega einföld í framkvæmd en lítur út og bragðast eins og hún hafi komið beint frá eftirréttameistara! Í grunninn kemur stökkur botn úr Pólókexi og smjöri og í fyllingunni er silkimjúk súkkulaðimús úr blöndu af dökku og mjólkursúkkulaði. Fyllingin er létt í sér og bráðnar í munni og yfir hana er síðan hellt silkimjúku súkkulaðiganache. Áður en tertan er borin fram er hún skreytt með restinni af súkkulaðimúsinni og ríflegu magni af ferskum berjum sem gefa tertunni ferskleika og skemmtilegan lit. Það er hægt að geyma hana óskreytta í kæli í nokkra daga og hentar því vel í sumarboðið, afmælið eða þegar þú vilt bjóða upp á eitthvað sem slær í gegn – án mikillar fyrirhafnar.

Innihald:

Botn:

  • 1 pakki Póló kex frá Frón
  • 80g brætt smjör

Fylling:

  • 500ml rjómi, skipt
  • 90g dökkt súkkulaði, suðusúkkulaði eða álíka
  • 90g mjólkursúkkulaði
  • 60g smjör
  • 1 msk. flórsykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • Fersk ber, magn og tegundir eftir smekk

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið og látið mesta hitann rjúka úr því. Vinnið kexið smátt í matvinnsluvél. Blandið saman og þjappið í 23cm lausbotna bökuform. Setjið í kæli.
  2. Saxið 50g af dökku súkkulaði og 50g af mjólkursúkkulaði og setjið í pott ásamt smjörinu og bræðið saman við vægan hita. Leyfið að kólna alveg við stofuhita.
  3. Stífþeytið 400 ml. af rjómanum og geymið í kæli þar til súkkulaðibráðin er orðin köld.
  4. Setjið 1/3 af rjómanum út í súkkulaðið og blandið varlega saman með sleikju.
  5. Blandið restinni af rjómanum varlega saman við svo blandan haldi sér.
  6. Setjið súkkulaðimúsina í bökuskelina og sléttið yfirborðið með skeið eða spaða. Setjið í kæli í 1 klst. Magnið af fyllingingunni er frekar ríflegt svo það er gott að geyma restina til að sprauta ofan á kökuna.
  7. Saxið restina af súkkulaðinu og setjið í hitaþolna skál. Hitið restina af rjómanum að og hellið yfir súkkulaðið. Leggið disk yfir og leyfið súkkulaðinu að bráðna. Hrærið þá saman þar til súkkulaðið og rjóminn er samlagað. Hellið yfir kökuna og geymið hana í kæli þar til það á að bera hana fram. Það er hægt að gera hana með góðum fyrirvara.
  8. Áður en hún er borin fram sprautið þá súkkulaðimúsinni ofan á og raðið berjunum í kring.

Unnið í samstarfi við Frón – ÍSAM.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading