Eldamennskan þarf ekkert að vera agalega flókin þó manni langi í eitthvað gúrm af grillinu. Þessar grísakótilettur frá Kjarnafæði eru með svo ljómandi góðri kryddblöndu að mér fannst ég ekkert þurfa að gera neitt við þær. Ég bar þær fram með grilluðu fersku grænmeti, uppáhalds útgáfunni minni af kartöflum og svo sælkeraútgáfu af heitri piparsósu. Meðlætið er auðvitað ekki heilagt en ég mæli þó eindregið með því að hafa góðar kartöflur og heita sósu með kótilettunum.
Innihald:
700-800g Grísakótilettur með suðrænni kryddblöndu frá Kjarnafæði
5 bökunarkartöflur
3-4 msk. ólífuolía
Nýmalaður svartur pipar eftir smekk
Sjávarsalt eftir smekk
½ tsk. hvítlauksduft
2 msk. smjör.
Aðferð:
- Byrjið á því að taka kjötið úr kæli og farið svo í að undirbúa kartöflurnar:
- Skolið kartöflurnar og skerið aðeins af botninum svo þær verði stöðugar. Skerið raufar í þær með 2 mm á milli. Varist að skera alla leið niður.
- Blandið olíu og kryddi saman og penslið kartöflurnar
- Bakið annað hvort í bakaraofni eða í airfryer og penslið reglulega með olíunni. Eldunartími fer svolítið eftir stærð kartaflanna en tekur líklega 40 mín í ofni og eitthvað styttra í airfryer.
- Þegar kartöflurnar eru alveg að verða klárar, setjið þá smá smjör yfir og meira af sjávarsalti.
- Rétt áður en kartöflurnar verða tilbúnar er gott að skella kjötinu á grillið. Kryddið á því er svo ljúffengt svo mér fannst ekki þurfa að krydda þær meira en það er ágætt að bjóða upp á salt og pipar við matarborðið ef einhver vill bæta við.
- Ég grilla kótiletturnar í nokkrar mínútur á hvorri hlið. Færið svo kjötið á disk og látið hvíla í nokkrar mínútur áður en það er borið fram.
Grillað grænmeti
½ kúrbítur
½ eggaldin
1 rauð paprika
1 msk. ólífuolía
Salt og pipar
Aðferð:
- Skolið grænmetið og skerið kúrbítinn og eggaldinið í ½ cm þykkar sneiðar.
- Raðið sneiðunum á bretti og stráið salti yfir og látið bíða í 15 mín. Þetta er gert til þess að draga vökvann úr grænmetinu. Þerrið með eldhúspappír.
- Skerið paprikuna í bita.
- Penslið grænmetið með örlitlu af olíu og grillið. Stráið salti og pipar yfir þegar grænmetið er tilbúið.
Grænpiparsósa
2 skallott laukar
2 msk. græn piparkorn lögð í bleyti
2 msk. smjör
1 ½ msk. hveiti
400 ml. nautasoð (eða vatn+nautakraftur)
2 tsk. sojasósa
2 tsk. worchestershire sósa
Sósulitur ef vill
200ml. rjómi
Salt og svartur pipar
Aðferð:
- Byrjið á því að setja piparkornin í litla skál og látið vatn fljóta yfir. Látið piparkornin liggja í bleyti í að minnsta kosti 30 mín.
- Saxið skallott laukinn smátt. Setjið smjörið í pott og steikið laukinn og piparkornin í smástund upp úr smjörinu.
- Setjið hveitið saman við og hrærið. Þynnið með nautasoði, smá og smá í einu. Pískið vel á milli.
- Bætið sojasósu og worchestershire sósu saman við ásamt sósulit ef þið viljið nota hann.
- Látið sósuna malla á vægum hita í 15 mín.
- Bætið rjómanum út í og smakkið til með salti og svörtum pipar ef þarf.








Unnið í samstarfi við Kjarnafæði.

