Ljúffeng & sumarleg máltíð sem tekur einungis 15 mínútur að græja! Forsoðin rifin fara beint á grillið, maísinn með og franskarnar hitaðar á meðan.
Grilluð St. Louis BBQ grísarif með frönskum og maís

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Ljúffeng & sumarleg máltíð sem tekur einungis 15 mínútur að græja! Forsoðin rifin fara beint á grillið, maísinn með og franskarnar hitaðar á meðan.

Ólýsanlega góðar grísalundir með bragðmiklum kryddhjúp og hunangssinneps gljáa. Rjómalöguð sósan er að sama skapi líkt og hún sé af öðrum heimi, svo góð er hún!

Grísakjöt og ávextir passa svo vel saman og hér er ég með bragðmikla kalda piri piri sósu og grillaðan aspas með. Þetta er alveg ótrúlega einföld eldamennska og ég held að ég hafi átt hraðamet í eldamennsku kvöldsins. Grísasneiðarnar taka …

Ljómandi góðar grísakótilettur í suðrænni marineringu. Bornar fram með sígildum hasselback kartöflum, grilluðu grænmeti og rjómalagaðri grænpiparsósu.

Í miðri vinnuviku er það vel þegið að þurfa ekki að hafa mikið fyrir kvöldmatnum. Úlfatíminn, heimalestur og þvottafjallið sem bíður er ekki beint hvetjandi fyrir mjög tímafrekan og metnaðarfullan kvöldverð fyrir fjölskylduna. Ég verð þá að benda á þessa …

Djúsí samlokur með grilluðum grísakótilettum og fylltar fersku grænmeti, beikoni og hvítlaukssósu. Fullkomið í léttan kvöldverð eða nestitöskuna!