Showing: 17 - 21 of 21 RESULTS

Grillaðar súrdeigssamlokur með beikoni, brie og sultuðum balsamik lauk

Þessar samlokur eru sannarlega af betri gerðinni. Smávegis lúxus en samt svo einfaldar og fljótlegar. Á milli tveggja glænýrra sneiða af súrdeigsbrauði koma vænar sneiðar af brie osti, stökkt beikon, rifinn ostur, klettasalat og punkturinn yfir i-ið er sultaður balsamik laukur sem fullkomnar bragðið. Grillaðar í blússheitu samlokugrilli og bornar fram með fersku salati. Þær passa ótrúlega vel sem hádegisverður, léttur kvöldverður eða jafnvel á bröns bakka og þá jafnvel skornar í fleiri bita.

Matarmiklar ítalskar samlokur með kjúklingi, tómötum og Sacla intenso sósu

Matarmiklar samlokur eru ekki einungis framúrskarandi gott nesti heldur geta þær líka staðið einar og sér til dæmis sem kvöldverður. Það er fátt betra en nýbakað súrdeigsbrauð sem hefur verið hlaðið góðu og fersku áleggi. Ég nota Sacla pastasósu í …