Matarmiklar ítalskar samlokur með kjúklingi, tómötum og Sacla intenso sósu

Matarmiklar
samlokur eru ekki einungis framúrskarandi gott nesti heldur geta þær líka
staðið einar og sér til dæmis sem kvöldverður. Það er fátt betra en nýbakað
súrdeigsbrauð sem hefur verið hlaðið góðu og fersku áleggi. Ég nota Sacla
pastasósu í þessar samlokur en þó að hún sé kannski fyrst og fremst ætluð með
pasta er alls ekki síðra að nota hana sem smyrju á samlokur. Áleggið er alls
ekki heilagt en hér lagði ég áherslu á ferska tómata, kjúkling og bragðmikinn
ost sem fer einstaklega vel með sósunni.

Innihaldsefni:

2
ciabattabrauð eða stórar súrdeigsbollur

1 stór
kjúklingabringa, elduð og skorin í sneiðar

Salt,nýmalaður
svartur pipar og hvítlauksduft

1 stór
tómatur skorinn í sneiðar

Fersk
salatblöð, ég notaði lambhagasalat

Bragðmikill
ostur líkt og Ísbúi eða sterkur gouda

Parmesan
ostur skorinn í flögur

Sacla
intenso pastasósa með sólþurrkuðum tómötum og hvítlauk

Aðferð:

 Kryddið
kjúklingabringuna með salti, svörtum pipar og hvítlauksdufti eftir smekk og
steikið á pönnu þar til hún er elduð í gegn. Hitið brauðin og skerið í tvennt.
Smyrjið sósunni á báða helminga og raðið kjúkling á botninn, því næst
tómatsneiðum og ostsneiðar þar ofan á. Raðið salatblöðum ofan á ostinn og
stráið parmesanflögum yfir salatið. Lokið samlokunni og skerið í tvennt. Berið
strax fram.

Recommended Articles

Leave a Reply