Sjónvarpskaka er ein af þeim kökum sem flestir sameinast um að þykja góð. Hún klárast alltaf
upp til agna og eru bæði ungir og aldnir jafn sólgnir í hana. Hér er ég með vegan útgáfu og hana er gott að grípa í hvort sem þið eruð vegan eða þurfið að sleppa eggjum eða mjólk vegna ofnæmis. Rapadura hrásykurinn frá Rapunzel er sérstaklega góður þar sem notast á við púðursykur og hér prófaði ég að nota hann í
kókostoppinn. Hann gefur gott karamellubragð sem passar einstaklega vel í þessa
uppskrift.

Innihald:

3 bollar
hveiti

2 msk.
maízenamjöl

1 ½
tsk. lyftiduft

½ tsk.
matarsódi

300ml
haframjólk

1/3
bolli oatly jógúrt með vanillubragði

120g
brætt vegan smjör

70ml
jurtaolía eða fljótandi kókosolía

300g
hrásykur

3 tsk.
vanilludropar

2 tsk.
eplaedik

Kókostoppur

130g
vegan smjör

130g
Rapadura hrásykur frá Rapunzel

120g
kókosmjöl frá Rapunzel

3 msk.
haframjólk

Aðferð:

Hitið
ofninn í 160° blástur. Setjið bökunarpappír í skúffukökuform og setjið til
hliðar.

Setjið
þurrefnin saman í skál og hrærið vel í með písk. Bræðið smjörið og setjið restina
af vökvanum saman í skál eða könnu og hrærið saman. Blandið blautefnum saman við
þurrefnin og setjið smjörið saman við að síðustu. Setjið deigið í formið og
bakið í 30 mín eða þar til prjóni sem stungið er í kökuna kemur hreinn upp. Á
meðan kakan er í ofninum útbúið þið kókoskaramelluna, þegar þið takið kökuna út
úr ofninum setjið þá yfirhita á ofninn og hækkið hitastigið upp í 200°C.

Smyrjið
karamellunni yfir kökuna og setjið hana aftur inn, passið að setja hana ofarlega
í ofninn. Bakið karamelluna í 5 mín eða þar til hún er farin að brúnast og bubbla
á köntunum.

Recommended Articles

Leave a Reply