Ristaðar, stökkar hnetur sem bera með sér ilm af jólum. Passa sérstaklega vel í jólapakkann eða á ostabakkann.
Stökkar & kryddaðar jólahnetur

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Ristaðar, stökkar hnetur sem bera með sér ilm af jólum. Passa sérstaklega vel í jólapakkann eða á ostabakkann.

Ljúffengar stökkar súkkulaðivöfflur sem tekur enga stund að skella í. Þeytta vanillukremið er fullkomið með!

Einföld og dásamlega ljúffeng skúffukaka með góðu kryddbragði og flöffí rjómaostakremi. Kakan er vegan og hentar því einnig mörgum með fæðuóþol.

Mjúk og góð formkaka með góðu og djúpu kryddbragði og ristuðum pekanhnetum. Lang best ylvolg með ískaldri mjólk eða góðu kaffi.

Dúnmjúkt brauð sem ber keim af norskum jólum. Smakkast langbest nýbakað með smjöri og góðum kaffibolla.

Þessi dásamlega ostakaka er algjör lúxus! Silkimjúk með ljósu og dökku súkkulaði, stökkum kexbotni, rjómakremi og súkkulaði ganache. Það tekur smá tíma að útbúa hana en útkoman er fullkomlega þess virði.

Einfaldur og afar bragðgóður jólaís sem hentar allri fjölskyldunni. Piparkökurnar passa sérstaklega vel með hvítu súkkulaðinu og silkimjúkum ísnum.

Fallegur og sparilegur eftirréttur sem þarf dágóðan undirbúning en er fullkomlega þess virði. Silkimjúk karamellumúsin passar fullkomlega með krydduðu kremkexinu, rjómanum og kanil marengsnum. Þennan verðið þið að prófa!