Mýksta og besta focaccia sem til er! Stökkt að utan og lungamjúkt að innan með bragðmiklu pestói í aðalhlutverki. Hægt er að nota hvaða álegg sem er!
Focaccia með rauðu pestói, ólífum og kokkteiltómötum

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Mýksta og besta focaccia sem til er! Stökkt að utan og lungamjúkt að innan með bragðmiklu pestói í aðalhlutverki. Hægt er að nota hvaða álegg sem er!

Falleg og bragðgóð ostakúla með mexíkósku ívafi sem hentar sérlega vel í Hrekkjavökupartýið. Það tekur enga stund að græja hana og passar með allskonar kexi og grænmeti!

Bókhveitigrautur er bragðgóður og næringarríkur morgunverður sem hentar sérstaklega vel fyrir þau sem þurfa að sleppa glúteni og höfrum. Toppaður með ferskum berjum, hnetusmjöri og hlynsírópi sem gerir hann ómótstæðilegan.

Litríkur og bragðgóður grænmetisréttur sem færir okkur smá yl í hjartað. Með nokkrum góðum kryddum, grænmeti og baunum verður til veisla!

Einfaldur, fljótlegur og næringarríkur indverskur vegan pönnuréttur sem öll fjölskyldan elskar! Að auki er hann ódýr og ótrúlega bragðgóður.

Ótrúlega fljótleg og bragðgóð hvítlaukspítsa sem tekur enga stund að græja! Fullkomin sem forréttur eða meðlæti með pastaréttum. Nú eða bara eins og sér!

Bragðgóðar og fljótlegar pítur með shawarma kjúklingabaunafyllingu sem fær bragðlaukana til þess að dansa! Heimagerða hvítlaukssósan passar svo fullkomlega með!

Klassísk uppskrift að Waldorf salati sem er ómissandi á jólaborðið. Fullkomið með t.d. reyktu grísakjöti, bragðmiklum hnetusteikum og kalkúni.