Grísk skál með marineruðum kjúklingi, avocadosalati og tzatziki jógúrtsósu

Matarmikil salöt hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og þetta er líklega í efstu þremur sætunum. Grísk matargerð er svo dásamleg, fersk, einföld hráefni og góð krydd. Það tekur ekki langan tíma að græja þetta salat og enn styttri tíma ef kjúklingurinn er tilbúinn í marineringunni þegar á að baka hann. Ég nota gríska jógúrt hvorutveggja í marineringuna og í tzatziki sósuna og ein dós passar akkúrat í uppskriftina. Ferskt salatið ásamt bragðmiklum kjúklingnum, salatostinum, sem á rætur sínar að rekja til Grikklands og sósunni góðu gerir þetta að fullkominni blöndu.

Þetta er svo alveg tilvalinn réttur í „meal prep“ og hægt að elda kjúklinginn fyrir nokkra daga og eiga sósuna til í kæli.

Innihald:

1 dl grísk jógúrt frá MS Gott í matinn

½ dl ólífuolía

1 geiralaus hvítlaukur

1 skallottlaukur fínt saxaður

1 tsk reykt paprikuduft

2 tsk þurrkað oregano

1 tsk sjávarsalt

½ tsk nýmalaður

svartur pipar

700g beinlaust kjúklingakjöt skorið í bita

Avocadosalat

2 avocado skorin í bita

½ agúrka skorin í bita

Rauðlaukur, magn eftir smekk, skorinn þunnt

Kokkteiltómatar skornir, magn eftir smekk

Jöklasalat, skorið í strimla

1 krukka Salatostur frá MS Gott í matinn, olía síuð frá

Tzatziki jógúrtsósa

230g grísk jógúrt frá MS Gott í matinn eða restin úr heilli dós

½ agúrka, rifin á rifjárni + ½ tsk salt

1 msk ferskur sítrónusafi

1-2 hvítlaukrif marin

½ tsk þurrkað dill

Salt eftir smekk

Rífið agúrkuna á rifjárni, setjið í skál og stráið salti yfir. Setjið í sigti og látið safann renna af í ca. 15 mín. Hrærið saman jógúrt, sítrónusafa, hvítlauk og dilli. Þegar mesti safinn er runninn af agúrkunni þrýstið þá skeið ofan á og kreistið sem mest af safanum úr. Blandið saman við jógúrtblönduna. Geymið í kæli þar til salatið er borið fram.

Aðferð:

  1. Skerið kjúklinginn í bita og setjið í jógúrtmarineringuna. Marinerið í að minnsta kosti 30 mín.
  2. Hitið ofninn í 200°C. Raðið bitunum á bökunarplötu og bakið í 10 mín, snúið bitunum við og bakið áfram í 5 mín. Í lokin er gott að stilla á grillið í ofninum og brúna kjúklinginn í 1-2 mín.
  3. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum er gott að skera grænmetið í salatið og raða því á bakka eða í skálar, allt eftir því hvort fólk fái sér sjálft af hverju grænmeti eins og um salatbar væri að ræða eða salatinu blandað í stóra skál og toppað með kjúklingnum og sósu.

Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading