Ef þig vantar eitthvað fljótlegt til þess að bera fram í saumó, eftirrétt í matarboðið eða eitthvað ljúffengt í afmælisveisluna þá er þessi baka alveg fullkomin. Hún er algjör draumur fyrir sanna unnendur súkkulaðis enda algjörlega nóg af því hér.
Í henni er kaffi sem má vissulega sleppa og nota t.d mjólk í staðinn en ég mæli með því að prófa það þar sem það dregur fram bragðið af súkkulaðinu án þess að það finnist kaffibragð. Einnig er mjög mikilvægt að setja smá salt í allar súkkulaðikökuuppskriftir þar sem það skerpir á súkkulaðibragðinu.
Ég nota hérna bæði 45% og 70% suðusúkkulaði frá Nóa Síríus sem og saltkaramellufyllta Pralín súkkalaðið frá Nóa í kremið. Toppurinn yfir i-ið er svo karamellukurlið sem fullkomnar alveg bökuna. Að mínu mati er alveg bráðnauðsynlegt að bera fram ís eða rjóma með bökunni sem gefur ákveðið jafnvægi á móti súkkulaðinu.
Brjálæðislega góður desert sem þú verður að prófa!
Innihald:
120 g púðursykur
220 g sykur
180 g mjúkt smjör
1 msk. vanilludropar
2 stór egg við stofuhita
60 ml kalt sterkt kaffi
4 msk. kakóduft frá Síríus Sælkerabakstri
1 tsk. matarsódi
320 g hveiti
½ tsk. mulið sjávarsalt
150 g Síríus suðusúkkulaði, saxað
150 g Síríus suðusúkkulaði 70%, saxað
Ofan á kökuna:
100g Síríus Pralín súkkulaði með saltkaramellufyllingu
3 msk rjómi
Karamellukurl frá Síríus Sælkerabakstri eftir smekk
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 180°C blástur
- Saxið súkkulaðið og setjið til hliðar og útbúið kaffið og látið kólna.
- Setjið púðursykur, sykur, smjör og vanilludropa í skál og þeytið saman. Setjið eitt
egg út í í einu og þeytið vel á milli. Þeytið blönduna þar til hún er orðin ljós og létt. - Blandið kakói og köldu kaffi saman við og þeytið.
- Setjið hveiti, matarsóda og salt saman við og blandið saman með sleikju. Setjð saxað súkkulaði saman við að síðustu.
- Smyrjið ofnfast mót í meðalstærð og smyrjið deiginu í formið. Bakið í 30 mín.
- Útbúið karamellukremið með því að brjóta súkkulaðið og setja í lítinn pott ásamt rjómanum. Bræðið saman og takið af hellunni.
- Takið kökuna út, látið mesta hitann rjúka úr henni, „drizzlið“ kreminu yfir kökuna og toppið með karamellukurli. Berið fram með vanilluís eða rjóma.






Unnið í samstarfi við Nóa Síríus.

