Lúxus súkkulaðikaka með söxuðu súkkulaði & hnetusmjörskremi

Þessi kaka er algjörlega stórkostleg og tekur ekki langan tíma að gera. Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi þessarar tvennu, súkkulaðis og hnetusmjörs og þessi kaka uppfyllir algerlega allar mínar væntingar. Kakan sjálf er alveg lungamjúk með góðu súkkulaðibragði og kremið er létt með áberandi keim af hnetusmjörinu. Ég nota kakóið frá Nóa Síríus í botninn ásamt klassíska suðusúkkulaðinu og sú tvenna er ekkert minna en stórkostleg í svona súkkulaðikökubakstur.

Þessa verðið þið bara að prófa en vara ykkur við, hún er fljót að klárast!

Innihald:

175 g hveiti

130 g púðursykur

3 msk. kakó frá Nóa Síríus

1 tsk. lyftiduft

½ tsk. matarsódi

½ tsk. salt

1 dl súrmjólk

120 ml nýmjólk

1 tsk. vanilludropar

1 dl jurtaolía

1 egg

65 g saxað suðusúkkulaði frá Nóa Síríus

 

Hnetusmjörskrem:

100 g mjúkt smjör

140 g hnetusmjör, fínt

120 g flórsykur

¼ tsk. sjávarsalt

1 tsk. vanilludropar

1-2 msk. nýmjólk

Setjið smjör og hnetusmjör í skál og þeytið vel saman, bætið við flórsykri og salti og hrærið vel. Bætið þá við vanilludropum og mjólk ef þarf. Þeytið kremið mjög vel þannig að það verði mjög létt og ljóst.

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 175°C blástur.
  2. Setjið öll þurrefni saman í skál og hrærið í með sleif. Setið þá súrmjólk, nýmjólk, vanilludropa, olíu og egg saman við og hrærið þar til deigið er slétt og samfellt. Bætið þá söxuðu súkkulaðinu saman við.
  3. Smyrjið eða klæðið með bökunarpappír, ferkantað 20x20cm form eða 22 cm hringlaga form. Hellið deiginu út í og bakið í 20-25 mín ca. Fer eftir ofnum en kakan er tilbúin þegar prjóni sem stungið er í hana kemur hreinn út.
  4. Kælið kökuna alveg.
  5. Útbúið kremið og smyrjið á kalda kökuna. Stráið söxuðu suðusúkkulaði yfir kremið og jafnvel salthnetum ef þið eigið þær til.

 

Unnið í samstarfi við Nóa Síríus.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading