Morgunverðarkaka með bláberjum, möndlum og kókos

Þessi kaka er algjört æði, hún er samt meira morgunverður en kaka en ég meina, hversu geggjað er að getað bara borðað köku í morgunmat?

Það er auðveldlega hægt að skipta út hráefnum og aðlaga hana að eigin smekk. Minnka eða auka sykurmagn, setja aðrar hnetur í staðinn fyrir möndlurnar o.s.frv. Ég mæli líka með að baka hana á sunnudegi og græja í box fyrir vikuna, hún geymist vel í kæli en einnig er hægt að frysta hana. Skella henni þá aðeins í örbylgjuna og njóta!

Innihald:

3 bollar grófir hafrar frá Rapunzel

1/3 bolli sykur að eigin vali, hlynsíróp, hrásykur eða erythritol

1 tsk kanill

1 tsk lyftiduft

salt á hnífsoddi

1/4 bolli saxaðar möndlur með hýði, ég notaði frá Rapunzel

2 stór lífræn egg

2 msk bragðlaus kókosolía brædd

1 og 1/2 bolli mjólk eftir smekk, ég notaði Oatly ikaffe

1 tsk vanilludropar

1 og 1/2 bolli bláber, fersk eða frosin

Gróft kókosmjöl eftir smekk

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 170°C blástur
  2. Saxið möndlurnar. Blandið öllum þurrefnum saman í skál og hrærið í með sleif.
  3. Setjið egg, mjólk, kókosolíu og vanilludropa saman við og hrærið þar til deigið verður nokkuð samfellt. Setjið bláber saman við og hrærið varlega saman með sleikju.
  4. Smyrjið eldfast mót í minni kantinum, stráið kókosmjöli yfir og setjið deigið út í. Bakið í 35 mín.
  5. Ég mæli líka með því að setja smá hlynsíróp yfir og njóta með grískri jógúrt eða þeyttum hafrarjóma.

 

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading