Verðlaunakökur sem eru bæði einfaldar og ótrúlega gómsætar. Fínlegar með blöndu af kókos, möndlum, apríkósum og hvítu súkkulaði.
Versalakökur með kókos, möndlum, apríkósum og hvítu súkkulaði

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Verðlaunakökur sem eru bæði einfaldar og ótrúlega gómsætar. Fínlegar með blöndu af kókos, möndlum, apríkósum og hvítu súkkulaði.

Stórkostlegar smákökur sem allir unnendur möndlu croissant munu falla fyrir. Stökkar að utan og mjúkar að innan með góðu möndlubragði.

Óáfengt jólaglögg sem inniheldur blöndu af lífræna söfum, þurrkaða ávexti, möndlur og nóg af jólakryddum. Heilnæmt fyrir sál og líkama á aðventunni.

Ef þú ert týpan sem elskar ostakökur, eplakökur og bökur, jafnvel karamellu og svolítið kröns þá er þetta kaka sem þú bara verður að prófa. Þetta ekki einfaldasta uppskrift í heimi en sannarlega þess virði að útbúa.

Ótrúlega einfalt og skemmtilegt piparkökuhús sem kemur tilbúið ósamsett í pakka frá Dr. Oetker. Spennandi verkefni fyrir kósídag með fjölskyldunni á aðventunni.

Loksins, loksins er komin uppskrift að stórkostlegum, almennilegum glútenlausum flatkökum sem líkjast okkar allra bestu íslensku flatkökum sem við elskum öll! Mjúkar, bragðgóðar og fullkomnar hvort sem er þær eru smurðar einungis með smjöri, osti eða hangikjöti.

Eftirréttir eða kökur sem innihalda bæði kaffi og súkkulaði er með því besta sem til er. Ef þið bætið svo mascarpone og rjóma í jöfnuna verður til eitthvað stórkostlegt sem enginn vegur er að standast. Þessar brownies eru einmitt þannig. …

Þegar þú vilt gera svolítið vel við þig og þína er þetta einstaklega meyra og bragðgóða lambafille fullkomin máltíð. Hunangsbakaða grænmetið passar svo sérlega vel með.