Þessar
dásamlegu smákökur eru að mínu mati algjörlega fullkomnar og alveg eins og
súkkulaðibitakökur eiga að vera. Stökkar að utan en mjúkar að innan. Með því að
blanda saman rjómasúkkulaðinu með karamellukurlinu og íslenska sjávarsaltinu
með 70% súkkulaðinu næst dásamlegt jafnvægi og bragðið verður algjörlega
ómótstæðilegt. Uppskriftin er alveg mátulega stór en það er lítið mál að
margfalda hana. Það er líka algjör snilld að frysta kökurnar óbakaðar en þannig
er alltaf hægt að stinga nokkrum í ofninn eftir þörfum og eiga þá alltaf til
nýbakaðar smákökur, athugið bara að þá þarf aðeins að lengja í baksturstímanum.
Innihald:
115g
mjúkt smjör
110g
púðursykur
50g
sykur
1
stórt egg við stofuhita
1
tsk vanilludropar
145g
hveiti
½
tsk salt
½
tsk matarsódi
¼ tsk
lyftiduft
80g
Rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti frá Nóa Síríus
100g
70% súkkulaði frá Nóa Síríus
Sjávarsaltflögur
Aðferð:
Blandið
saman þurrefnum í skál og setjið til hliðar. Saxið súkkulaðið gróft og setjið
til hliðar.
Setjið
sykur og smjör saman í skál og þeytið þar til létt og ljóst eða í 3-4 mín,
stoppið 2x á tímanum og skafið niður með sleikju. Setjið eggið saman við og
þeytið áfram í 2 mín. Setjið vanilludropa saman við og þeytið áfram í 2 mín.
Blandið
þurrefnunum saman við þeytinguna varlega með sleikju. Þegar allt er blandað
saman, setjið þá súkkulaðið saman við og blandið við deigið. Best er að kæla
deigið í amk 1 klst en því má sleppa.
Setjið
á bökunarplötu klædda bökunarpappír með 2 teskeiðum eða lítilli ísskeið. Hafið
gott bil á milli þar sem kökurnar renna vel út.
Bakið
við 175°C blástur í 13-15 mín. Leyfið kökunum að kólna í nokkrar mínútur á
plötunni en færið þær svo yfir á kæligrind, stráið sjávarsaltflögum yfir ef
vill.