Það
er fátt hátíðlegra en sörur. Við þekkjum þessar klassísku með möndlubotninum,
súkkulaði og kaffi kreminu og hjúpað dásamlegu suðusúkkulaði. Þær eru sí
vinsælar og á mörgum heimilum taka fjölskyldur sig saman og baka þær í
sameiningu. Það er smá handavinna að útbúa sörur en útkoman er sannarlega þess
virði.
Þessar
eru tilbrigði við þessar klassísku en almáttugur minn, þær eru sannarlega ekki
síðri. Marsípanbotn í grunninn með unaðslegu karamellukremi og hjúpað með
silkimjúku Karamellu Doré súkkulaði frá Nóa Síríus.
Líkt
og með þessar klassísku geymast þær best í frysti og gott að bera þær fram
hálffrosnar. Þessar verðið þið bara að prófa!
Botn:
2 eggjahvítur
1 dl sykur
250g kalt marsípan, rifið fínt
Krem:
200g mjúkt smjör
2 eggjarauður
1 tsk vanilludropar
½ dl þykk karamellusósa, hægt að kaupa tilbúna eða
gera frá grunni. Uppskrift fylgir.
3 dl flórsykur
Hjúpur
300g
Karamellu Doré súkkulaði frá Nóa Síríus
Aðferð:
Hitið
ofninn í 180°C blástur.
Þeytið
saman eggjahvítur og sykur þar til blandan verður að stífum marengs. Rífið
marsípanið saman við og hrærið varlega með sleikju. Setjið marengsinn í
sprautupoka með kringlóttum stút og sprautið litlar kökur á bökunarpappírsklædda
ofnplötu. Gott að er hafa kökurnar í minni kantinum eða um 2 cm í þvermál.
Bakið
í 13-15 mín, fer eftir ofnum. Þær eru tilbúnar þegar þær eru orðnar gullbrúnar.
Kælið vel áður en haldið er áfram.
Kremið:
Setjið
smjörið í skál og þeytið vel með handþeytara. Setjið rauðurnar, vanilludropana,
karamelluna og flórsykurinn saman við og þeytið áfram. Skafið niður hliðarnar
og þeytið áfram í góða stund. Best er að þeyta kremið vandlega. Þegar það er
tilbúið veltið því aðeins fram og til baka í skálinni með sleikju til þess að
losa aðeins um loftbólurnar sem myndast.
Setjið
kremið í sprautupoka með kringlóttum stút og sprautið á hverja köku. Magn eftir
smekk. Frystið botnana með kreminu.
Hjúpur:
Þegar
kökurnar eru frosnar í gegn útbúið þið hjúpinn.
Saxið
Karamellu Doré súkkulaðið og setjið í skál sem þolir að fara í örbylgjuofn.
Stillið á næstmesta hita og hitið súkkulaðið 15 sekúndur í senn og hrærið á
milli. Þegar það er orðið vel bráðið en enn heilir bitar eftir takið þá skálina
út og hrærið þangað til það er allt brætt. Þetta er svona lata aðferðin við að
tempra súkkulaði og kemur alltaf vel út hjá mér.
Dýfið
hverri köku í súkkulaðið og setjið á plötu. Mér finnst gott að vera með hreina
og raka tusku við höndina og þurra af fingrunum þegar þess þarf.
Þegar
kökurnar hafa allar verið hjúpaðar fara þær aftur í frystinn. Þegar þær eru
frosnar í gegn er gott að setja þær í loftþétt box. Geymið í frystinum þar til
það á að bera þær fram.