Pítur eru alveg framúrskarandi góður matur í miðri viku en það má auðvitað fylla pítubrauð með hverju sem er. Hér er ég með alveg dásamlega gríska fyllingu sem samanstendur af lambakjöti, fersku grænmeti og kaldri sósu þar sem aðaluppistaðan er Salatosturinn og Gríska jógúrtin frá Gott í matinn. Það má auðvitað nota hvaða kjöt sem er en ég átti til afgang af grilluðu lambalæri og notaði hann í píturnar en lamba eða nautahakk er ekki síðra í píturnar.
Innihald:
6 pítubrauð
400g lambahakk, eða afgangur af lambalæri. Það má einnig notast við nauthakk.
1 tsk ólífuolía
½ tsk hvítlauksduft
Salt og svartur pipar eftir smekk
Íssalat
Kokkteiltómatar
Agúrka
Rauðlaukur
Rifinn cheddar ostur frá MS Gott í matinn
Fersk steinselja
Fetasósa
50ml ólífuolía
80g salatostur frá MS Gott í matinn, olían síuð frá
80g grísk jógúrt frá MS Gott í matinn
1 tsk Dijon sinnep
½ tsk hvítlauksduft
½ tsk þurrkað oregano
¼ tsk þurrkað dill
1 tsk þurrkuð steinselja
¼ tsk sjávarsalt
¼ tsk svartur pipar
2 msk vatn ef þið viljið þynna sósuna aðeins
Sósan aðferð:
Setjið öll innihaldsefni í lítinn blandara og látið hann vinna þar allt er vel samlagað. Ef þarf má bæta við örlitlu vatni til þess að þynna hana.
Aðferð og samsetning:
Ef þið notið hakk, hitið þá olíu á pönnu og setjið hakkið út á heita pönnuna. Kryddið með salti, pipar og hvítlauksdufti.
Skerið það magn af grænmeti sem ykkur hugnast og raðið á disk. Hitið brauðin og skerið í tvennt. Smyrjið þau að innan með sósunni, stráið cheddar osti inn í og raðið salatblöðum í brauðin. Setjið kjöt og grænmeti eftir smekk ofan á salatið og toppið með fetasósunni.