Að bera fram súpu í brauðskálum er stórskemmtileg leið til þess að poppa upp góðar súpuuppskriftir. Mig hefur lengi langað að prófa að gera svoleiðis skálar sjálf en hingað til hef ég aðeins fengið slíkt á kaffihúsum.

Það er í raun alveg lygilega auðvelt en fyrst ég var að hafa fyrir því var alger snilld að stytta mér leið í súpugerðinni. Ég hitaði upp mexíkósku kjúklingasúpuna frá Ora en hún er alveg stórgóð. Ég þarf yfirleitt alltaf að bæta einhverjum kryddum eða breyta því sem kemur tilbúið en súpan er það góð að ég þurfti þess ekki. Þetta sló þvílíkt í gegn hjá fjölskyldunni, bæði var súpan ljúffeng og ekki voru brauðskálarnar síðri og gaman að mega borða súpuskálina!

Brauðskálar:

800g brauðhveiti

4 ½ tsk. þurrger

1 msk. sykur

2 tsk. sjávarsalt

550 ml volgt vatn (37°C)

2 msk. ólífuolía

1 egg + 1 msk. mjólk, pískað saman

 

Súpan:

4 dósir mexíkósk kjúklingasúpa frá Ora

Rifinn ostur, magn eftir smekk

Ferskt kóríander ef vill

Aðferð:

  1. Takið 1 dl frá af hveitinu og setjið restina af þurrefnunum saman í hrærivélaskál, festið krókinn á.
  2. Velgið vatnið og hellið því saman við þurrefnin á meðan hún vinnur á rólegum hraða. Setjið ólífuolíuna út í.
  3. Leyfið vélinni að hnoða deigið í 7-8 mín á rólegum hraða. Deigið á ekki að festast í skálinni en þó vera mjúkt. Ef það vantar meira hveiti, getið þið bætt síðasta desilítranum rólega saman við eftir þörfum.
  4. Takið krókinn af og takið deigið úr skálinni og mótið úr því kúlu. Spreyið skálina að innan með olíuspreyi. Setjið deigið aftur í skálina og spreyið létt yfir. Hyljið með plastfilmu.
  5. Látið deigið hefast á borði í 1 ½ tíma.
  6. Takið deigið og skiptið því jafnt í 6 hluta. Mér finnst best að vigta allt deigið og deila í 6. Vigta því næst hvern hluta.
  7. Setjið bökunarpappír á 2 ofnplötur. Mótið hvern hluta í kúlu. Dragið hana eftir yfirborði borðsins með höndunum svo yfirborðið strekkist vel.
  8. Setjið 3 kúlur á hvora plötu með eins góðu millibili og hægt er.
  9. Skerið kross ofan á hverja bollu og penslið yfir með egginu.
  10. Stillið ofninn á 40°C og úðið ofninn vel að innan með vatni.
  11. Hefið bollurnar í 25-30 mín. Takið þær þá út og hitið ofninn í 210°C blástur.
  12. Bakið bollurnar í 25-30 mín eða þangað til þær eru orðnar vel gylltar. Takið þær út og setjið á grind til að leyfa þeim að kólna.
  13. Setjið súpuna í pott og hitið að suðu, mér finnst alveg óþarfi að bragðbæta hana, það er ríflegt magn af kjúklingi og grænmeti í henni en það má að sjálfsögðu alveg bæta við ef ykkur finnst þess þurfa eða smakka til með kryddum.
  14. Skiptið súpunni í skálarnar og toppið með rifnum osti og fersku kóríander. Það er auðvitað einnig ljómandi gott að setja sýrðan rjóma ofan á og jafnvel örlítið af nachos flögum.

 

Unnið í samstarfi við ÍSAM – ORA

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading