Jólalegar og bragðgóðar smákökur sem gaman er að bera fram. Það mætti jafnvel segja að þær séu blanda af piparkökum og lagtertu sem skreyttar eru með kökuskrauti.
Mjúkar piparkökusamlokur með smjörkremi og jólaskrauti

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Jólalegar og bragðgóðar smákökur sem gaman er að bera fram. Það mætti jafnvel segja að þær séu blanda af piparkökum og lagtertu sem skreyttar eru með kökuskrauti.

Fallegur og sparilegur eftirréttur sem þarf dágóðan undirbúning en er fullkomlega þess virði. Silkimjúk karamellumúsin passar fullkomlega með krydduðu kremkexinu, rjómanum og kanil marengsnum. Þennan verðið þið að prófa!

Bragðgóðir heimagerðir hrekkjavöku-kleinuhringir sem koma sérstaklega vel út á hrekkjavöku veisluborðinu. Yngsta kynslóðin hreinlega elskar þessa!

Heitar ídýfur hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og mínu fólki. Við þekkjum flest eðluna góðu en það er hægt að gera svo ótal margar útgáfur af slíkum ídýfum. Þessi sló þvílíkt í gegn hjá fjölskyldunni og er …

Þessi eru ólýsanlega góð! Ostakökufyllingu sprautað á frönsk smjördeigshorn ásamt sultu og ferskum brómberjum og bláberjum. Eftirréttur sem fólk fær ekki nóg af!

Þessar samlokur eru sannarlega af betri gerðinni. Smávegis lúxus en samt svo einfaldar og fljótlegar. Á milli tveggja glænýrra sneiða af súrdeigsbrauði koma vænar sneiðar af brie osti, stökkt beikon, rifinn ostur, klettasalat og punkturinn yfir i-ið er sultaður balsamik laukur sem fullkomnar bragðið. Grillaðar í blússheitu samlokugrilli og bornar fram með fersku salati. Þær passa ótrúlega vel sem hádegisverður, léttur kvöldverður eða jafnvel á bröns bakka og þá jafnvel skornar í fleiri bita.

Allt með kaffibragði er gott og ég stend og fell með því. Þessa dagana er framboð á bollum í hámarki enda örstutt í bolludaginn. Þessi klassíska með sultu, rjóma og súkkulaðiglassúr á alltaf sinn sess á mínu heimili en svo …